fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Það sem ég var að leitast við að fá fram hjá hv. framsögumanni var hvort þetta hefðu verið mistök eða ekki, að það skyldi ekki hafa verið metið sérstaklega hver áhrifin væru á ríkissjóð að vera að opna lífeyrisaukasjóðinn fyrir einstaklingum sem höfðu ekki greitt í sjóðinn frá júní 2016 til júní 2017, að þeir myndu eiga rétt á greiðslum úr lífeyrisaukasjóðnum hefðu þeir greiðslur að nýju. Það var alveg klárt mál að þessi lagabreyting myndi fela í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Þessi auknu útgjöld voru ekki metin. Það er ekki forsvaranlegt að mínu mati og ég tel að það þurfi að rannsaka það mál gaumgæfilega til þess að í framtíðinni sé fjárlaganefnd og Alþingi Íslendinga ekki að fá bakreikninga upp á 14 milljarða kr. Að mínu mati voru þetta mistök sem þarf að rannsaka. Þetta er ekki flokkspólitískt mál heldur er það bara upp á virðingu Alþingis og virðingu fyrir ríkissjóð Íslands að við látum fara yfir það hvort gerð voru mistök sem kosta svona mikið, að það sé farið í greiningarvinnu og fundið út hver mistökin voru. Spurningin var, og svarið kom ekki fram hjá hv. framsögumanni, hvort þetta væru mistök eða ekki. Hvað ætlar meiri hlutinn að gera í því sem átti sér stað varðandi lífeyrisaukasjóðinn?