153. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2022.

fjáraukalög 2022.

409. mál
[18:44]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Ég er að hugsa um að byrja á þessu lífeyrisaukasjóðsmáli því að það er mjög áhugavert. Förum aðeins yfir það hvar mistökin í þessu máli liggja. Þau voru ekki að setja þennan glugga þar sem fólk gat komið inn aftur og fengið rétt á því að fá úr þessum lífeyrisaukasjóði. Þau voru ekki matið á því hvað það myndi kosta, ekki einu sinni þar, af því það er ekkert svo óeðlilegt að gera ráð fyrir því að rétturinn til lífeyrisaukasjóðsins, sem eru ekki áunnin réttindi, myndi falla út til jafns við aðra sem kæmu inn. Það eru bara ákveðið margir sem vinna hjá hinu opinbera og þegar það er fjölgun er yfirleitt einhver fækkun á móti og það myndi bara skiptast á. Þannig var matið sem var stuðst við til að byrja með. Mistökin sem eru hins vegar gerð liggja í eftirfylgd með framkvæmd þeirra forsendna sem voru settar upp, þ.e. það var gefinn opinn gluggi til að sækja aukin réttindi og það var enginn að fylgjast með því hvernig sókn í þau réttindi þróaðist. Það hefði átt að koma í ljós strax. Það hefði átt að fylgjast með því. Mig grunar að það sé eitthvað sem hefði átt að gerast í fjármálaráðuneytinu og þá sérstaklega hjá stjórn LSR. Stjórn LSR á að fylgjast með því að forsendur gagnvart þeim samningum sem þau voru að gera standist þannig að þetta hefði átt að koma í ljós strax 2017 og sérstaklega ári seinna, um mitt ár 2018. Þá hefðum við átt að vita að forsendurnar um kostnaðarmatið, að það myndi standa á jöfnu, væru ekki að standast. Núna er sem sagt verið að biðja um 14 milljarða aukalega í fjáraukalögum fyrir þetta ár vegna um 2.200 ríkisstarfsmanna sem hófu vinnu sína á tímabilinu júní 2016 til júní 2018. Þetta voru starfsmenn sem áttu rétt á svokölluðum lífeyrisauka sem viðkomandi lífeyrisþegar áttu bara rétt á ef þeir væru opinberir starfsmenn. Þetta eru BHM, BSRB, Kennarasambandið og Félag hjúkrunarfræðinga, að mestu leyti þessar starfsstéttir sem eru þarna upptaldar. Rétturinn til lífeyrisauka féll niður ef starfsfólk hætti störfum, taldist ekki áunnin réttindi, en þegar lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins var breytt, úr jafnri ávinnslu í aldurstengda ávinnslu, var samhliða kveðið á um stofnun lífeyrisaukasjóðs innan A-deildar LSR sem var fjármagnaður með sérstöku 107 milljarða framlagi, tæplega, úr ríkissjóði vegna lífeyrisréttinda um 25.000 sjóðfélaga. Lögin sem voru samþykkt sögðu m.a. að þau sem greiddu ekki iðgjald til sjóðsins á tímabilinu júní 2016 til júní 2017 skyldu eiga rétt á greiðslum úr lífeyrisaukasjóði hæfu þau greiðslur til sjóðsins eigi síðar en 12 mánuðum eftir gildistöku. Það þýddi þá að einhver sem hafði ekki greitt iðgjöld á tímabilinu júní 2016 til júní 2017 en byrjaði að greiða til LSR fyrir 1. júlí 2018 fengi réttindi úr lífeyrisaukasjóði.

Það sem gerist er að um 1.100 manns byrja að greiða til LSR á tímabilinu 30. september 2016 til 1. júní 2017 og svo er sagt að það sé álíka stór hópur sem bætist við fram til 31. maí 2018, við vitum ekki hversu stór en það er giskað á að það sé álíka stór hópur. Þetta eru 2.200 í heildina. Og af hverju er verið að biðja um 14 milljarða? Það var metið sem svo að þessi endurkomuréttindi myndu ekki kosta neitt. Ef einhverjir gætu nýtt sér þessa heimild þá myndu a.m.k. svipað margir hætta á móti og heildarkostnaðurinn því jafnast út. En þetta vanmat á því hvað þessi lagabreyting kostaði hljómar núna upp á 14 milljarða kr. Það er álíka mikið vanmat á kostnaði og við glímum núna við vegna vanmats í málaflokki fatlaðs fólks. Áhugavert. Það var líka vanmat á því hvað sú lagasetning myndi kosta og sveitarfélögin eru núna að glíma við reikning upp á 12–13 milljarða aukalega, halla í þeim málaflokki.

Það er vakin athygli á þessu í greinargerð frumvarps til fjáraukalaga en ekki gerð nein tilraun til að útskýra mögulegt umfang vandans. Rétt rúmum tveimur vikum seinna kemur tillaga frá fjármálaráðuneytinu um 10–14 milljarða til að koma til móts við þetta vanmat á kostnaði. Þar segir ráðuneytið að stranglega séð miðað við lög þurfi ríkið ekki að greiða þennan pening. Það myndi þýða einhverjar skerðingar á lífeyri ef það yrði ekki gert og út frá sjónarmiðum um sanngirni verði ekki hjá því komist að standa skil á þessum fjárheimildum fyrir LSR. Það er frekar kaldhæðnislegt í samanburði við þann vanda sem ÍL-sjóður stendur frammi fyrir þar sem fyrirsjáanlegar eru einhverjar skerðingar á lífeyrisréttindum ef ríkið stendur ekki við skilyrði HFF-bréfanna og síðan líka vanda sveitarfélaga vegna lagasetningar um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, þar sem klárlega var vanmat.

En hvaða hópur er þetta sem greiddi ekki iðgjald á bilinu júní 2016 til júní 2017? Við þeirri spurningu fengust engin svör. Fjárlaganefnd hefur ekki hugmynd um hvað einkennir þann hóp, rúmlega 2.000 manns, sem kom einhvern veginn aftur inn í LSR á þessum tiltölulega stutta tíma. Samt þarf að samþykkja fjárheimild upp á 14 milljarða til þess að uppgjör LSR líti vel út um áramótin og ekki komi til þess að stjórn LSR þurfi að taka einhverja ákvörðun um breytingar á réttindum. Að mínu mati ganga þessi rök ekki alveg upp. Það ætti alveg að vera nóg fyrir LSR að stjórnvöld myndu gefa út einhverja yfirlýsingu um að þessi réttindi almennt séð verði tryggð á einhvern hátt, að gefnum einhverjum skilyrðum þess vegna eða hvernig sem það er, og koma þannig í veg fyrir lagatæknilega skyldu stjórnar LSR til að ákveða breytingar á réttindum. Þá væri hægt að gefa tíma til þess að vinna vel og faglega að því og útskýra um hvað þetta mál snýst í rauninni allt í staðinn fyrir að troða því í gegnum þingið á einni viku. Fjárlaganefnd var lofað að niðurstaða greiningarvinnu vegna þessa máls yrði lögð fyrir nefndina jafnóðum en þegar ég spurði hvort það þýddi að fjárheimildin yrði ekki notuð ef forsendurnar virtust vera eitthvað skrýtnari en kannski er ýjað að þá leist nú engum á blikuna, svörin við því voru ekkert voðalega jákvæð. Hérna er verið að tönnlast á því að það sé bara verið að gefa heimild og ef kostnaðurinn við þetta verði minni verði ekki öll heimildin notuð. Eins og það sé eitthvað óvenjulegt. Það er bara mjög venjulegt. Allar fjárheimildir ríkisins virka þannig. Það á ekki að eyða meiru en fjárheimildin er fyrir. Ef það á að byggja spítala fyrir 100 milljarða og það kostar 90, þá á bara að eyða 90. Það á ekki að eyða 10 milljörðum aukalega í eitthvað annað. Þannig virkar það bara.

Ég gef ekki mikið fyrir þessa útúrsnúninga í rauninni þegar allt kemur til alls. Það eru hins vegar allar líkur á því að allir 14 milljarðarnir verði ekki notaðir. Að vísu, ef við berum aðeins saman, þá voru samþykktir 107 milljarðar fyrir um 25.000 sjóðfélaga árið 2016 og nú eru þetta um 2.200 sjóðfélagar, ekkert langt frá því að vera 2.500 ef við námundum, fyrir 14 milljarða. Það eru þá 25.000 fyrir 100 og 2.500 fyrir 10 milljarða væri svona jöfnun á því, á réttindunum sem þarna er verið að greiða fyrir. Tölurnar passa náttúrlega ekki alveg saman en hins vegar gætu þær gert það af því að lífeyrisréttindi þessara hópa gætu verið aðeins mismunandi og svo er það tíminn sem hefur liðið frá 2016–2022, þ.e. einfaldlega verðbólgan og 14 milljarðar séu í rauninni 10 milljarða virði miðað við árið 2016, að 10 milljarðar þá séu virði 14 milljarða núna.

Mér finnst þetta mjög áhugavert mál og mér finnst undarlegt að afgreiða það í fjárauka. Ástæðan fyrir því að það er verið að afgreiða þetta í fjárauka eru þessir útúrsnúningar um að það verði að gera þetta fyrir áramót. Við erum búin að hafa tímann fyrir okkur síðan 2018 til þess að taka eftir því að þetta fór illa en það var enginn á vaktinni. Ég hef bara þann grun almennt, ef ég fer bara í almennar ásakanir varðandi stjórnun opinberra fyrirtækja og þar sem opinberir aðilar sinna stjórnunarhlutverki, að þar sé ekkert rosalega mikil vinna í gangi, þar sitji fólk og það sé ekki nægilega gott eftirlit með því sem það á að passa upp á. Ef svo hefði verið þá hefði það átt að sjá þennan galla á forsendum samningsins. Það er hægt að vísa í stjórn Íslandspósts t.d. á árum áður til þess að benda á frekar slæleg vinnubrögð stjórnar og alveg örugglega á fleiri stöðum. Það kemur yfirleitt ekki í ljós fyrr en eitthvað fer úrskeiðis að það var í rauninni ekki verið að gera neitt. Það var ekki verið að sinna nægu eftirliti og þangað til sleppur fólk með að gera ekki neitt eða mjög lítið, treystir í rauninni bara þeim sem eru ráðnir, framkvæmdastjórum eða eitthvað svoleiðis. Allt of oft hefur það sem fór úrskeiðis gerst á þann hátt að stjórnin sem er valin til að sinna ákveðnu eftirlitshlutverki var einfaldlega ekki að sinna starfi sínu. — Mér þætti vænt um að það væri ekki of mikið spjall hérna í sal á meðan ég er að halda ræðu mína, hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson. (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill biðja þingmenn um að vera ekki að spjalla saman í salnum.)

Það þarf að hækka róminn og það er frekar óþægilegt, allt í lagi í smástund en í lengri tíma óþægilegt.

Almennt séð þá finnst mér rosalega gaman að fjalla um fjárlög, fjáraukalög, fjármálaáætlanir og allt þetta, sérstaklega með tilliti til laga um opinber fjármál sem eru í dálitlu uppáhaldi hjá mér. Mér finnst þau almennt séð mjög góð en ég sé á svo mörgum stöðum að það er hvorki farið eftir anda laganna né lögunum sjálfum þegar allt kemur til alls. Það á við um allt ferlið, alveg frá fjármálastefnu, fjármálaáætlun, fjárlögum, fjáraukalögum, ársskýrslum ráðherra — í öllu ferlinu. Mér finnst það leitt því að lögin eru góð en ég skil að einhverju leyti að það sé erfitt að skipta um gír í rauninni. Það var ákveðin framkvæmd á fjárlagaferlinu áður og það er bara rosalega erfitt að breyta. Það er ekkert sjálfsagt við það að fara að vinna hlutina öðruvísi, sérstaklega ekki þegar það er sama fólkið sem sinnir því sem það hefur alltaf sinnt áður. Þá er miklu auðveldara að gera hlutina eins og alltaf áður. Jú, það er vissulega einhver blæbrigðamunur, ákveðinn útlitsmunur, en ég verð að segja að innihaldsmunurinn er, ef eitthvað er, orðinn verri. Það er ekki sama gagnsæi í fjárlagaferlinu núna miðað við hvernig það var áður, einfaldlega af því að hver einasti fjárlagaliður þannig séð var aðgengilegri en hann er núna, sem segir nokkuð og er nokkuð áhugavert. Þetta kemur út á þann hátt að ég held að það sé ákveðin tregða við að láta lögin virka yfir áramót. Í þessu frumvarpi til fjáraukalaga kemur t.d. hæstv. fjármálaráðherra og það má segja að hann monti sig af því að hérna séu 100 milljarðar aukalega í auknar tekjur sem séu augljóslega vegna góðrar stefnu stjórnvalda í hinu og þessu. Allir sem skoða það nánar sjá að sjálfsögðu að það stenst ekki alveg skoðun. Allar áætlanir um ferðaþjónustu t.d. sem er stór hluti af þessu fóru fram úr öllum vonum, ekki endilega út af því að það sé hægt að benda á einhverjar sérstakar aðgerðir sem urðu til þess að skapa þær framfarir. Hérna erum við í raun að sjá, eins og fulltrúar fjármálaráðuneytisins fjölluðu um á fundi fjárlaganefndar, ákveðna tilfærslu á hagvextinum. Það var búist við því að hann myndi ekki taka svona hratt við sér og myndi toppa yfir á næsta ár. En spárnar núna gera ráð fyrir því að toppurinn hafi færst dálítið inn á þetta ár og muni þá verða lægri á næsta ári, það verði ekki eins mikill hagvöxtur þá og var búist við. Batinn dreifist eða kemur aðeins fyrr, sem er jákvætt, en það er ekki endilega hægt að segja að það sé vegna stefnu stjórnvalda. Þá er svolítið stórt tekið upp í sig að vera að hreykja sér af því.

Það sem kemur síðan á móti því, sem virðist einhvern veginn skipta engu máli og er ekki verið að vekja athygli á, er að það er verið að biðja um fjárheimildir í aukin útgjöld upp á 90 milljarða. Það er því vanáætlun upp á 100 milljarða í tekjur og það er vanáætlun á útgjöldum um 90 milljarða, 10 milljarða munur þarna, sem er bara mjög einföld skekkja eða einföld vikmörk í fjárlögum sem eru upp á 1.300 milljarða. Með þessari skekkju upp á 100 milljarða til eða frá þarna ásamt almennum varasjóði erum við að tala um rúmlega 10% mun á því sem gert var ráð fyrir í fjárlögum 2022, sem er þó nokkuð mikið. Vissulega má útskýra góðan hluta af því með Covid-bylgjunni í vor. Það má alveg viðurkenna það, það kostar eitthvað í aukin útgjöld, tvímælalaust. Ég er að benda á að það virðist vera tregða við að þora að láta árslokastöðuna gilda eins og lög um opinber fjármál segja að hún eigi að gera. Við erum enn að nota fjáraukalög til að loka einhverjum plúsum og mínusum í gegnum fjárlögin í staðinn fyrir að það fari bara yfir áramót eins og á að gera, allir plúsar og allir mínusar innan þeirra marka sem eðlilegir eru samkvæmt lögum um opinber fjármál. En einhverra hluta vegna þá þarf að stilla þetta til, til að geta montað sig af einhverri afkomu sem er síðan í raun og veru ekkert sú afkoma sem við sjáum í tölunum. Það er verið að monta sig af 100 milljarða aukaafkomu. En nei, það eru 10 milljarðar því það þarf líka að taka tillit til aukagjaldanna. En því er bara sleppt. Mér finnst það svo ómálefnalegt þegar verið er að fjalla um þetta svona að ég kemst ekki alveg yfir það, afsakið mig bara.

Þetta eru önnur fjáraukalögin í ár. Þau fyrstu voru tæknilegs eðlis út af breytingum á Stjórnarráðinu. Þau bættu engu við í fjárheimildunum, það var bara tilfærsla á milli ráðuneyta og stofnana og stofnun nýrra ráðuneyta. En nú bætast við 90 milljarðar sem sundurliðast samkvæmt töflu sem birtist í nefndaráliti meiri hlutans. Það eru auknar fjárheimildir vegna kórónuveirufaraldursins upp á 16,6 milljarða. Efnahagslegar aðgerðir eru tæplega 4,9 milljarðar. Stuðningur vegna stríðsins í Úkraínu 1,4 milljarðar. Önnur útgjaldatilefni 14,9 milljarðar. Að lokum eru það endurmetin vaxtagjöld upp á 37 milljarða. Á móti þessum útgjaldatilefnum er aukakostnaður og almennur varasjóður upp á 13,8 milljarða og svo bætast við næstum því 15 milljarðar í breytingartillögum. Þeir skiptast aðallega í tvennt, annars vegar ýmis útgjaldamál eins og fangelsi, íþrótta- og æskulýðsmál, íslenskukennslu vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu og að lokum eingreiðsla til öryrkja en hins vegar er gert ráð fyrir 14 milljörðum í þennan lífeyrisaukasjóð sem ég fjallaði um áðan.

Ég hefði viljað að það hefði verið gefinn betri tími, ég bað um útskýringu ráðuneytisins og rök fyrir því að þessar fjárheimildir féllu undir það að vera tímabundnar, ófyrirséðar og óhjákvæmilegar. Ég fékk það svar ekki, það barst ekki í tíma áður en nefndin afgreiddi málið frá sér inn í þingsal. Ég get ekki útskýrt hvert eitt og einasta útgjaldatilefni fyrir sig. Það er alveg hægt að segja, eins og meiri hlutinn fjallar hér um, að ýmislegt sé að einhverju leyti rökstyðjanlegt með tilliti til skilyrða um fjárauka, Covid-kostnaðurinn t.d., það má tiltölulega auðveldlega rökstyðja hann. En eins og varðandi lífeyrisaukann þá er líka hægt að gera ráð fyrir fjárheimildum fyrir fram. Stjórnarskráin gerir ráð fyrir því að engin gjöld séu greidd nema til sé heimild í fjárauka eða fjárlögum. En hérna erum við alltaf að glíma við eftiráfjárveitingar. Það er búið að eyða peningunum, þingið fær ekkert að segja um þá eyðslu fyrr en eftir á. Stjórnarskráin virkar ekki þannig. Það er skiljanlegt í tilfellum þar sem við erum með sjálfvirku jöfnunarkerfin, Atvinnuleysistryggingasjóð o.s.frv. Það er bara verið að framkvæma lögin. Það á ekki að þurfa að leita fjárheimildar fyrir fram varðandi þau kerfi. Við vitum alveg hvernig þau eru að þróast, það er lögbundið. Einhverra hluta vegna þá falla önnur svipuð kerfi ekki undir sama hatt. Þar nefni ég oft málefni fatlaðs fólks, t.d. NPA-samninga. Þar er kveðið á um ákveðin réttindi fólks. Meira að segja var í lögum bráðabirgðaákvæði um hversu marga samninga ríkið ætlaði að greiða með þátttöku sveitarfélaga en þeim fjölda hefur aldrei verið náð, merkilegt nokk. Þar hefur verið sagt að ríkið greiði ákveðið margar milljónir, segjum bara milljarð, og þegar sá milljarður er búinn þá hættir ríkið að borga fyrir þau réttindi þrátt fyrir að samkvæmt lögum eigi fleiri samningar rétt á niðurgreiðslu frá ríkinu. Þar með gildir ekki það sama um lög um NPA-samningana og lög um t.d. atvinnuleysistryggingar, sem er merkilegt. Það sama á við um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Þegar fjárheimildin er búin er bara hætt að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Það er mjög spes, mjög sérstakt af hverju sambærileg lög falla ekki undir sömu fjárheimildareglur. Reglur um fjárheimildir fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð eru þær að ef meira er borgað út en fjárheimildir eru fyrir þá er það afgreitt eftir á. Allir kvitta upp á það. En þegar um að ræða lög um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu eða NPA-samninga — þegar fjárheimildin er búin er hætt að borga. Það væri alveg eins og ef fjárheimildin væri búin gagnvart Atvinnuleysistryggingasjóði þá bara fengi fólk ekki atvinnuleysisbætur. Það er ekkert öðruvísi þarna en meðhöndlunin á þessum tveimur atriðum er mjög mismunandi.

Ég ætla að fjalla aðeins um breytingartillögur. Ég stend ásamt nefndinni allri að breytingartillögu sem leiðir af sér 60.300 kr. eingreiðslu til öryrkja. En ég vek þó athygli á því að hér er um að ræða fjárheimild sem fellur ekki alveg undir skilyrði fjáraukalaga samkvæmt lögum um opinber fjármál. Hér er í raun um að ræða úthlutun á fjárheimildum sem þegar eru til staðar. Fyrir nokkrum árum voru lagðir til 4 milljarðar í kerfisbreytingar vegna lífeyrisgreiðslna öryrkja. Hluta af þeim 4 milljörðum kr. átti að nota til að minnka svokallaða krónu á móti krónu skerðingu en ekki var samkomulag um hvað ætti að gera við afganginn, sem var 1,2 milljarðar. Því var afgangurinn greiddur út sem eingreiðsla í lok árs og enn hefur ekki verið fundinn staður í kerfinu fyrir þennan afgang af þessum upprunalegu 4 milljörðum. Það er því skilningur minn að tillaga ráðherra í frumvarpi til fjáraukalaga sé að úthluta afgangnum af þessari fjárheimild í eingreiðslu eins og fyrri ár.

Mér finnst rétt að vekja athygli á því að þingið er ekki bundið á sama hátt af skilyrðum laga um opinber fjármál. Þar segir, með leyfi forseta:

„Ráðherra er heimilt, ef þess gerist þörf, að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins …“

Þingið hefur hins vegar mun frjálsari hendur í fjárheimildum sínum. Ráðherra má ekki koma með tillögu sem fer gegn lögum um opinber fjármál. Þingið er ekki bundið af þeim tillögum enda er sagt að ráðherra geti komið með tillögur sem verða að uppfylla þessi skilyrði um ófyrirséð, tímabundin og óhjákvæmileg útgjöld. Þingið er ekki bundið þar enda er þingið með fjárveitingavald samkvæmt stjórnarskrá, sem er frekar einfalt.

Hér er því lögð til ný upphæð í takti við fyrri eingreiðslur sem þingið hefur afgreitt og beini ég því til ríkisstjórnarinnar að gera bara ráð fyrir þessari eingreiðslu í næstu fjármálaáætlun. Nánar tiltekið ætti að miða við að þessi eingreiðsla, sem margir túlka sem desemberuppbót, en er það alls ekki, verði í raun sameinuð eiginlegri desemberuppbót og látin fylgja þeirri upphæð sem launþegar á bæði opinberum og almennum vinnumarkaði fá. Desemberuppbót öryrkja er mun lægri en gengur og gerist á bæði almenna og opinbera markaðnum. Með þessari greiðslu upp á 60.000 kr. rúmlega held ég að við séum komin með u.þ.b. sömu upphæð. Mín tillaga er sú að gera desemberuppbótina að alvöru desemberuppbót eins og allir aðrir fá og þá erum við komin á samanburðarstað með þetta.

Það undarlega við þessa breytingartillögu er að hún er 300 kr. hærri en breytingartillaga sem Flokkur fólksins lagði fram við 1. umr. þessa máls, sem var að vísu með hærri heildarupphæð. Þótt 300 kr. aukalega séu alveg kærkomin viðbót við þessa eingreiðslu er þetta óþarfa skjalavinnsla bara til þess að þurfa ekki að samþykkja tillögu Flokks fólksins. Mér finnst það áhugavert.

Að lokum stend ég ásamt fleirum, hv. þingmönnum Kristrúnu Frostadóttur, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Eyjólfi Ármannssyni, að breytingartillögu um 5 milljarða aukningu til jöfnunarsjóðs vegna útgjalda við framfylgd laga um stuðning við fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Sambærileg fjárheimild er lögð til við 2. umr. fjárlaga fyrir næsta ár en samsvarandi kostnaður hefur einnig fallið til á þessu ári. Sömu rök gilda um þann kostnað sem hefur fallið á sveitarfélögin á þessu ári og mun falla á næsta ári. Framkvæmdin á því er hins vegar aðeins öðruvísi í breytingartillögum við fjárlög þar sem í raun er verið að gefa tekjuskatt til sveitarfélaganna á móti tekjuskatti hjá ríkinu en það er bara lagatæknilega séð auðveldara að setja þetta í jöfnunarsjóðinn í fjáraukalögunum þannig að við gerum tillögu um það. Hér má geta þess að kostnaður vegna laga um stuðning við fólk með langvarandi stuðningsþarfir er líklega miklu meiri, slagar upp í 13 milljarða á árinu 2022. Ráðuneytið hefur kallað þennan kostnað mögulegan útgjaldavanda hjá sveitarfélögunum og sagt að hann þurfi skoða betur en ríkisstjórnin hefur lagt til 5 milljarða í fjárlögum næsta árs til að koma til móts við þennan kostnaðarauka. Þetta er ákveðin viðleitni þannig að ég legg til sömu viðleitni a.m.k. fyrir þetta ár. Það ætti að vera eins augljóst og hægt er að hafa það í rauninni. Staðreyndin er sú að kostnaður vegna þessara réttinda sem fólk með langvarandi stuðningsþarfir fékk með lagasetningunni 2018 var stórkostlega vanmetinn. Umsögn Reykjavíkurborgar sýndi fram á það svart á hvítu og sú umsögn er að rætast upp á næstum því 100%. Það eru alltaf verðlagsbreytingar og slys sem þarf að taka tillit til og það gerir nákvæma tölu ekki alveg hárnákvæma. Staðreyndin er sú að kostnaður vegna þeirra réttinda sem fólk með langvarandi stuðningsþarfir fékk með lagasetningunni 2018 var vanmetinn. Á nákvæmlega sama hátt og kostnaður vegna lífeyrisaukasjóðs LSR var vanmetinn. Þar er lögð til 14 milljarða kr. heimild þrátt fyrir að enginn hafi góðar greiningar í höndunum um raunverulegan kostnað. Þar er vísað í sanngirnisrök sem eiga alveg jafn mikið við í þessu máli. 5 milljarða kr. aukning til jöfnunarsjóðs vegna þessa fyrir árið 2022, eins og lagt er til vegna næsta árs, er því algjört lágmark. Þessi upphæð ætti að sjálfsögðu að vera a.m.k. 9 milljarðar, eins og kemur fram í skýrslunni um þetta, og þess vegna 13 milljarða heimild, nákvæmlega eins og vegna lífeyrisaukasjóðsins, sem verður þá ekki öll notuð ef kostnaður þar á bak við er minni, þ.e. með sömu heimildarákvæðum og gerð eru vegna lífeyrisaukans.

Það er síðan skoðun 1. minni hluta að allur þessi kostnaður sem lagasetningin hefur haft í för með sér fyrir sveitarfélögin ætti að vera bættur að fullu þegar góð kostnaðargreining hefur verið gerð. Því er að minnsta kosti lagt til að bætt verði við 5 milljörðum kr. fyrir árið 2022 upp í þann kostnað sem er fyrirsjáanlega meiri.