fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Í seinna andsvari mínu vil ég bara segja að það var verið að vinna með hugtakið neikvætt brottfall og þennan fjölda sem þingmaður hefur gert að ágætu umtalsefni hér. Ég held að það sé m.a. nákvæmlega sú greiningar- og rannsóknarvinna sem þarf að vinna til að vinna úr þessu máli.
Seinna andsvar mitt við ræðu hv. þingmanns vil ég nota til að ræða áhugamál okkar, sem er spágerð. Ég leyfi mér, virðulegur forseti, í þessari umræðu í dag að varpa fram þeirri hugsun að þegar við ræðum um kröftugan hagvöxt á þessu ári — við sáum hann ekki fyrir, hv. þingmaður segir að hér komi síðan hæstv. ráðherrar og þakki sér heilmikið, kannski getum við líka sagt að þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi þessi árangur orðið. En þetta er alvörumál sem við skulum ræða, hvernig þeirri spágerð er háttað sem við notum til grundvallar afgreiðslu okkar hér. Við höfum reynslu af því að það er mjög oft erfitt að meta spá í kröftugum uppgangi og eins höfum við tilhneigingu til að vanmeta samdráttinn í kröppum samdrætti og til eru alls konar hagfræðilegar greiningar á þessu. En í mínum huga er sá hagvöxtur sem við erum með núna að stórum hluta kannski fyrst og fremst leiðrétting. Hann er bara leiðrétting inn í hagkerfi sem var stoppað af. Það er alveg spurning hvort við eigum endilega að horfa á þetta sem hinn hreina hagvöxt, sem við ræðum oft um, heldur miklu frekar sem leiðréttingu á hagkerfi og landsframleiðslu sem er undirliggjandi hér. En hitt er síðan alveg sjálfstætt vandamál, eða sjálfstætt verkefni vil ég frekar segja, sem hv. þingmaður rakti hér, sem er þessi spágerð og hvernig við hittum á að nota spágerðina. Við erum vonandi að fara inn í 2. umr. fjárlaga í næstu viku þar sem við erum með mjög breitt svigrúm þeirra spáaðila sem eru að spá fyrir um framvindu efnahagsmála næstu ár.