fjáraukalög 2022.
Frú forseti. Ég hjó eftir því hjá hv. þingmanni að hann talaði um aðhald og að við þyrftum að passa vel hvert krónurnar færu. Eitt af því sem hefur komið mér svolítið á óvart eftir að ég byrjaði á þingi er hversu ógagnsætt í rauninni allt er sem tengist fjármálum ríkisins. Bæði er erfitt að átta sig á fjárlögunum niður í meiri nákvæmni ef maður vill fara dýpra en það sem við fáum í fjárlagafrumvarpi. Ég hefði t.d. viljað sjá útlistun í fjáraukalögunum hvernig auknum stuðningi, auknu fjármagni vegna komu flóttamanna var skipt niður. Það er bara sagt að það sé aukinn stuðningur. Oft förum við ekki nógu djúpt í þetta. Sama er þegar maður horfir til baka og reynir að átta sig á því, eins og við höfum heyrt hér rætt um t.d. málefni fatlaðra, hvernig sá gjaldaflokkur hefur vaxið rosalega mikið og við tókum einhvern veginn ekki eftir því fyrr en hann var kominn upp í 13 milljarða. Mig langaði að spyrja hv. þingmann um hvað honum fyndist um eitt sem við hjá Pírötum höfum verið að þrýsta svolítið á og það er meira gagnsæi og bara hreinlega að opna upp miklu meira af gögnunum um hvert peningarnir eru að fara. Þannig getum við þingmenn en líka almenningur og aðrir sem vilja, rannsakað betur hvað mætti betur fara, fleiri en bara þessir örfáu innan ráðuneytanna sem hafa aðgang að þeim gögnum. Hvað finnst hv. þingmanni um meira gagnsæi og meiri opinleika þegar kemur að þessum fjármunum?