fjáraukalög 2022.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held við séum sammála um það að alla vega við sem störfum við það að taka ákvarðanir um þessa hluti þurfum meiri innsýn í hvað er verið að gera. Hv. þingmaður nefndi að þetta sé bara eins og fyrirtæki. Ég minnist þess að þegar yngri bróðir minn var að læra hagfræði þá fannst honum frekar leiðinleg hagfræði fyrirtækja eða eins og það hefur verið kallað á ensku, með leyfi forseta, „microeconomics“. (Gripið fram í.) Rekstrarhagfræði heitir það á íslensku, takk fyrir, ég vissi það ekki. En þá sendi ég honum ársreikning fyrirtækisins sem ég var að vinna hjá, fyrirtækinu Microsoft sem var með tífalda veltu íslenska ríkisins. Þá loksins sá hann að það voru til tölur. Einmitt hjá stórfyrirtækjunum getur maður skoðað í hvað peningarnir eru að fara. Hér fáum við bara stóran reikning sem segir lyfjakostnaður. En hvað ef við vildum vita hvaða lyf það eru í rauninni sem kosta okkur svona mikið? Eða eins og ég nefndi áðan, hvað er að kosta okkur svona mikið í tengslum við flóttamenn? Að geta farið niður á þessi atriði, geta alltaf farið neðar og neðar í gögnunum til að átta okkur á því hvar það er sem við þurfum að laga hlutina. Meðan við höfum ekki þá innsýn þá getum við ekki tekið vel upplýstar ákvarðanir að mínu mati. Önnur lönd hafa þróað líka kerfi til að geta séð hvaða áhrif t.d. skattbreytingar hafa á tekjur, ekki bara ríkisins heldur líka áhrif á heimilin í landinu o.s.frv., eru með líkön sem hjálpa til við að svara þessum spurningum. Mig langaði að vita hvort hv. þingmaður teldi ekki að slíkt væri gott að hafa líka fyrir okkur þingheim til að meta þær tillögur sem koma hingað inn.