153. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2022.

fjáraukalög 2022.

409. mál
[21:09]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get alveg tekið undir það að allt sem hjálpar til við það að reka betur fyrirtækið Ísland, ef við getum orðað það svo, er mikilvægt. Þeir sem reka fyrirtæki fara reglulega á námskeið í því hvernig er hægt að spara og fara betur með krónuna o.s.frv. Ég efast ekki um að það á líka við um forstöðumenn þeirra stofnana sem ríkið er að reka. Menn verða að gæta aðhalds. Menn þurfa líka alltaf að geta tekið utan um verkefnið og væntanlega eru allar þessar tölur til. En við megum ekki gleyma því heldur að síðan koma upp einhver sérstök frávik eins og við erum t.d. að glíma við í dag, sem eru afleiðingar Covid. Þar af leiðandi erum við með fjárauka upp á 74,7 milljarða plús þessa heimild upp á allt að 14 milljarða fyrir LSR sem er bara allt annað mál og ætla ég ekki að blanda því inn í þessa umræðu. En það endurspeglar náttúrlega, tel ég, mjög vel þessar breytur sem geta orðið. En þá er líka mikilvægt þegar vel gengur og við erum ekki að fást við einhverja faraldra eða stríð erlendis og slíkt að menn búi í haginn til þess að geta tekist á við vandamál framtíðarinnar. Það má kannski segja að sú lukka var að það var búið að vinna í haginn fyrir þjóðarbúið áður en þessi ósköp dundu yfir okkur.