153. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2022.

fjáraukalög 2022.

409. mál
[21:12]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Við höfum í dag og kvöld verið að ræða frumvarp til fjáraukalaga, erum stödd í 2. umr. og undir eru allnokkrar tillögur. Sitthvað er gott. Ég vil sérstaklega nefna einhug í fjárlaganefnd, þar sem ég sit, um eingreiðslu til öryrkja sem ég styð. Ég vil líka nefna sérstaklega þá breytingartillögu sem við í minni hlutanum stöndum saman að um greiðslur til sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlaða, auk þess sem þarna er að finna nauðsynlegt framlag til fangelsismála. Fyrir árið 2022 eru nú lögð fram fjáraukalög í annað sinn. Það segir sitthvað um stöðuna en segir kannski líka ýmislegt um stjórn ríkisfjármála. Í mars var lagt fram frumvarp til að taka á breytingum á Stjórnarráðinu og fjölgun ráðherrastóla. Það reyndist þá vera kostnaður upp á tæpa 2 milljarða en endanleg tala í þeim efnum liggur ekki fyrir. Það verður að segjast að þetta gaf auðvitað tóninn. Það er merkilegt til þess að hugsa að ríkisstjórnin skuli hafa valið að fara í svo kostnaðarsamar aðgerðir í eigin þágu í beinu framhaldi af ævintýralegum halla eftir heimsfaraldur. Lítil skynsemi er í því og mér finnst það sýna visst taktleysi að bjóða almenningi upp á slíka eyðslu, komandi út úr þeim halla sem við vorum og erum í og inn í þær aðstæður sem fram undan eru, sem eru auðvitað erfiðir og flóknir kjarasamningar, að ráðdeild ríkisstjórnarinnar sjálfrar hafi ekki verið meiri en þessi við þær aðstæður.

Mig langar líka til að minna á hvert hlutverk fjáraukalaga er samkvæmt lögum. Þeim er ekki ætlað að mæta útgjöldum til nýrra verkefna, auknu umfangi ríkisins, heldur til að bregðast við óvæntum og ófyrirséðum útgjöldum. Þetta hlutverk fjáraukalaga þjónar m.a. þeim tilgangi að festa í sessi fjárstjórnarvald þingsins en á líka að ýta undir og auka ábyrgð ráðuneyta og ríkisstjórnar á að fara ekki fram yfir heimildir sem þeim eru veittar af Alþingi nema við sérstakrar og ófyrirséðar aðstæður. Það er þörf á að halda þessu til haga.

En hér erum við mætt í annarri umferð eða í fjáraukalögum númer tvö fyrir þetta ár þar sem fjárheimildir eru auknar um 75 milljarða, samtals um 6,1% frá samþykktum fjárlögum fyrir árið 2022. Í 2. umr. er enn að bætast í og þar vegur auðvitað langsamlega þyngst 14 milljarða heimild fjármálaráðherra vegna samkomulags frá árinu 2016 við LSR. Ég ætla ekki að fjalla um það í löngu máli en get tekið undir að það sé sanngirnissjónarmið í því að fjármálaráðherra fái heimild til að standa við það samkomulag. Ég held reyndar að ágætt væri að árétta það við hæstv. fjármálaráðherra að sú regla eigi almennt að vera í hávegum höfð að samningar skulu standa.

Hvað varðar stóru myndina af ríkisfjármálunum þá er kannski ágætt að nefna hið augljósa, sem er að við erum að koma út úr sögulega miklum afkomuhalla árin 2020 og 2021. Auðvitað er viðbúið, eðlilegt og skiljanlegt að það taki tíma að ná fyrri stöðu og það er mikilvægt að ná mjúkri lendingu í þeim efnum. En það verður að vera markmiðið að það gerist og að það gerist fyrr en seinna. Við höfum gagnrýnt að það sé ekki fyrr en árið 2027 sem þessi ríkisstjórn stefnir að því að svo verði og erum á því að þar eigi, og aðstæður kalli á það, að stíga ákveðnari skref en þessi ríkisstjórn er að gera.

Forseti. Mig langaði til að tala um þá stöðu sem blasir við heimilum og fyrirtækjum landsins vegna hárra vaxta. Þetta er staða sem er heimilum og fyrirtækjum landsins ágætlega kunn. Við ræðum minna um það í opinberri umræðu og hér í þessum þingsal hvað skuldir og háir vextir gera ríkissjóði. Við ræðum þetta alveg merkilega lítið í þessum sal því að þetta er auðvitað stórmál og alvarleg staða. Stýrivextir hafa ekki verið hærri síðan eftir hrun og standa núna í 6%. Útlánavextir banka eru á bilinu 7–8%. Í því samhengi langar mig að nefna dæmisögu af fjölskyldu sem vorið 2021 borgaði um 180.000 kr. á mánuði af fasteignaláni sínu. Þessi fjölskylda er með 50 millj. kr. óverðtryggt lán til 40 ára á breytilegum vöxtum. Í dag er veruleiki þessarar fjölskyldu að afborgunin af láninu nemur 330.000 kr. á mánuði. Greiðslubyrðin hefur aukist um 150.000 kr. Ég nefni þetta af því að stundum eru það litlu sögurnar sem best varpa ljósi á stóru myndina þegar við heyrum af því hvernig þetta birtist fólkinu í landinu.

Bankavextir á Íslandi eru tvöfalt til þrefalt hærri en í Evrópu. Stýrivextir á Íslandi eru þrefalt hærri en á hinum Norðurlöndunum. Mikið hefur verið rætt um sólina á Tenerife í því samhengi, en eftir stendur spurningin: Hvers vegna þarf þrefalt hærri stýrivexti á Íslandi en annars staðar í Evrópu til að vinna gegn verðbólgu sem er undir meðaltali í álfunni? Ástæðan er ekki síst gjaldmiðillinn okkar. Fer ekki að verða tímabært að stjórnvöld horfist í augu við þetta? Á sama tíma eru vextir vegna lána ríkisins tvöfalt og þrefalt hærri en í löndunum í kringum okkur. Ég nefni þetta líka vegna þess að kostnaður hárra gjalda bítur ríkissjóð auðvitað alveg eins og háir vextir bíta heimilin. Við gleymum þessu og tölum merkilega lítið um þetta þegar við erum að ræða fjármál ríkisins, þetta gleymist í samhengi fjárlaga og í umræðum um þau. Afleiðingin er sú að á ríkisstjórninni hvílir þess vegna enn ríkari krafa um að stilla skuldasöfnun ríkisins í hóf. Okkar aðstæður hér á Íslandi krefjast þess. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar og þingsins er enn ríkari vegna aðstæðna okkar hér. Nú er kostnaðurinn sem lagt er til að bæta við hallarekstur ríkissjóðs í fjárauka þessum ekki síst til kominn vegna áhrifa verðbólgu á vaxtagjöld ríkissjóðs. Aðrir þættir eru útgjöld vegna árásar Rússa á Úkraínu og svo er það kostnaður sem ríkið stendur enn frammi fyrir vegna afleiðinga heimsfaraldurs. Þessir samverkandi þættir gera að verkum að breytingarnar eru óvenju umfangsmiklar í þessum fjárauka. Breyttar efnahagshorfur og aukin verðbólga, ég leyfi mér að nefna í því sambandi blikur á lofti á heims- og á alþjóðavísu eins og krísu sem talað er um í Evrópu, „cost of living crisis“, sem er breyta sem við ættum að hafa í huga í samhengi við ferðaþjónustuna okkar á næsta ári. Þetta er sá liður sem fjölskyldur og fólk kippa fyrst út úr heimilisbókhaldinu þegar harðnar í ári. Breyttar efnahagshorfur og aukin verðbólga eru þeir þættir sem fjárlagavaldið ætti að vera að horfa á og ég hef saknað þess að heyra ekki fulltrúa fleiri flokka tala um þessa stöðu og þætti.

Í 1. umr. umræðu um fjáraukalög kynnti hæstv. fjármálaráðherra aukin útgjöld upp á 75 milljarða eins og ég nefndi hér áðan. Þar af voru 37 milljarðar vegna vaxtagjalda. Mesta hækkunin frá framlagningu frumvarpsins var vegna vaxtagjalda, þar á eftir komu heilbrigðismálin. Vaxtagjöldin hækka sem sagt meira en útgjöld til heilbrigðismála núna á milli umræðna. Útgjaldaliður vaxta hefur hækkað meira en útgjöld til heilbrigðismála á milli umræðna hér. Þessi mikli kostnaður íslenska ríkisins af vöxtum er stundum kynntur eins og hver önnur óbreytanleg staðreynd, nánast eins og umfjöllun um veðrið, þetta séu tölur sem við höfum ekkert um að segja. Það er auðvitað ekki alveg svo og afleiðingarnar birtast okkur þannig að þessi hái vaxtakostnaður hefur áhrif á burði og getu ríkisins. Hann lækkar t.d. burði og getu ríkisins til ýmissa fjárfestinga, hefur áhrif á burði og getu ríkisins til að fjárfesta í velferð og heilbrigðismálum, sem er sá málaflokkur sem þjóðin öll er einhuga um að vilja ekki bara verja heldur styðja, styrkja og efla. Við erum að verja hærri fjárhæðum í vexti en til heilsugæslu og samgöngumála samanlagt. Við erum að verja hærra hlutfalli landsframleiðslu í vexti en sumar Evrópuþjóðir verja í varnarmál, sem er ekkert smáræði. Vandinn hér er ekki of lágir skattar heldur of háir vextir. Þetta er kerfislægur vandi sem við losnum ekki við fyrr en við erum komin með nýjan gjaldmiðil. Kostnaðurinn við að halda í krónuna hefur áhrif á velferðina á Íslandi. Krónan er ekki bara dýrkeypt fyrir heimilin í landinu, hún er það líka fyrir íslenska ríkið.

Frú forseti. Vaxtagjöld ríkisins eru, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, þrefalt hærri hér en á öðrum Norðurlöndum og jafnvel hærri en í ríkjum sem hafa hærra skuldahlutfall en við vegna þess hve vextirnir eru háir. Þetta þarf að ræða.

Frú forseti. Horfur eru dökkar og verðbólgan ætlar að reynast okkur langvinn sem gerir um leið erfiðara að eiga við hana og ná henni niður. Christine Lagarde, seðlabankastjóri Evrópu, hefur gefið til kynna að stýrivextir í álfunni verði hækkaðir við næstu vaxtaákvörðun í desembermánuði. Stýrivextir Evrópska seðlabankans eru núna 2%. Vextir upp á 2% þykja auðvitað ekki háir í alþjóðlegum samanburði í ljósi verðbólgunnar. Vextir eru um 3% í Noregi, 2,5% í Svíþjóð en 6% á Íslandi.

Ég vil líka fjalla um útgjaldaaukningu. Tugmilljarða útgjaldaaukning á sama tíma og ríkissjóður er og hefur verið rekinn með halla eru vondar fréttir á verðbólgutímum. Ég vil halda því til haga að erfið staða ríkissjóðs var til komin áður en afleiðingar heimsfaraldurs skullu hér á. Það er ekki rétt að tala með þeim hætti að ríkisstjórnin hafi hér verið búin að búa sérstaklega vel í haginn. Mikill vöxtur opinberra gjalda nú ýtir undir verðbólguna. Þensluhvetjandi aðgerðir á útgjaldahlið ríkisins vinna gegn markmiðinu um að stemma stigu við verðbólgunni. Á þetta hefur Seðlabankinn bent. Á þetta hafa ýmsir og margir umsagnaraðilar fyrir fjárlaganefnd bent á og flaggað og reynt að ýta við fjármálaráðherra og þinginu um að standa í lappirnar gagnvart því mikilvæga verkefni að vinna gegn verðbólgunni. Viðreisn hefur sannarlega talað fyrir þessu líka. Það skiptir óskaplega miklu máli í samhengi við kjarasamninga núna og öll lífskjör fólks í landinu að fjármálaráðherra standi þá vakt að reyna að ná tökum á verðbólgunni og skilji Seðlabankann ekki einan eftir með það þunga verkefni.

Frú forseti. Tilgangur fjáraukalaga er, eins og ég nefndi, að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum. Hér eru þau hins vegar nýtt að hluta til að stoppa í göt sem þegar hafði verið bent á við samþykkt fjárlaga fyrir ári síðan. Í umsögn sinni við frumvarpið bendir Ríkisendurskoðun sérstaklega á að viðbótargjöld Landspítalans og annarra heilbrigðisstofnana vegna faraldursins hefðu ekki átt að koma á óvart; atriði eins og stytting vinnuvikunnar, þetta eru einfaldlega þættir sem ábyrgur fjármálaráðherra hefði verið búinn að taka með í reikninginn. Ég held að ég taki undir þá gagnrýni að heildarmyndin eigi að liggja þannig fyrir að það séu bara ófyrirséð, óhjákvæmileg og tímabundin útgjöld sem detti inn í þessari umferð. Svo er ekki í dag.

Eitt sterkasta framlag ríkisstjórnarinnar til þessara erfiðu kjarasamninga sem við okkur blasa væri akkúrat núna að nýta fjáraukann til að stýra ríkisfjármálum þannig að markmið um að ná tökum á verðbólgu geti skilað árangri. Það er stóra myndin og ætti að vera stóra myndin hjá fjármálaráðherra um þessar mundir. Þannig gæti hann staðið að því að bæta lífskjör fólksins í landinu. Mér finnst leitt að segja það en mér þykir hann ekki gera það með nægilega trúverðugum hætti.