153. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2022.

fjáraukalög 2022.

409. mál
[21:27]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Forseti. Það hafa verið skemmtilegar umræður í gangi um fjáraukalögin, verðbólgu og vaxtagjöld og alls konar skemmtilegt sem ég er ekki beint sérfróð um. En ég er náttúrlega af þeirri kynslóð sem mun lifa í gegnum loftslagsáhrifin og mun þurfa að lifa við þær afleiðingar sem núverandi aðgerðir stjórnvalda um allan heim munu hafa. Því vil ég nýta tækifærið í hvert skipti sem ég fæ til að benda á mikilvægi þess að auka fjárframlög þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmálum. Þar falla orkumál auðvitað undir. Framfarir hafa vissulega orðið í þessum málaflokkum, sérstaklega hvað varðar fjárveitingar og fjárframlög til þessara málaflokka. En betur má ef duga skal í svona alvarlegum efnum. Það gerir mig rosalega sorgmædda að við séum því miður ekki komin á þann stað að taka þessi málefni alvarlega. Við stöndum frammi fyrir mjög miklum áskorunum. Þetta hafa ráðherrar þessarar hæstv. ríkisstjórnar sagt sjálfir. Við þurfum að henda okkur af stað í orkuskiptin, taka það alvarlega og gera það vel, af því að Ísland á möguleika á því að fara sem hraðast í gegnum þessi orkuskipti og vera mjög framarlega á þessu sviði. En við erum einfaldlega ekki að grípa til aðgerða þegar kemur að þessu. Við erum ekki að taka þessu nógu alvarlega. Þetta snýst ekki bara um að virkja og halda áfram að virkja heldur þarf líka að grípa til einhverra aðgerða til að koma til móts við þessar virkjanir sem munu verða settar upp eftir að rammaáætlun var samþykkt í vor.

Þess vegna vil ég ítreka mikilvægi þess að aukin fjárframlög fari til þessara sviða og ekki síst, ef við sundurliðum þetta eitthvað, til almenningssamgangna þar sem við höfum séð niðurskurð þegar kemur að strætó. Ég spyr nú bara: Hvernig ætlum við að halda borgarlínunni gangandi ef við getum einu sinni ekki haldið strætó gangandi? Ég vona svo innilega að vel verði staðið að þessu og vandað til verka, en það er ekki hægt nema fjármagn verði sett í þennan málaflokk. Mér þykir mjög miður að þetta sé ekki í algerum forgangi hjá þessari ríkisstjórn því eins og ég sagði þá erum við að finna fyrir áhrifum loftslagsvánnar núna. Það verða 10 gráður á morgun, 30. nóvember, sem ég held að hljóti að vera einhvers konar met og ég held að vandinn sé orðinn rosalega alvarlegur.

Nú hefur verið talað mjög mikið um verðbólgu, hækkun verðlags og alls konar skemmtilegt. Við sjáum ekki fram á að fólksflutningar minnki út af því að sumt fólk þarf auðvitað líka að flýja hækkandi verðlag í sínu heimalandi og slæmt efnahagsástand. Þá aukast auðvitað fólksflutningar á milli landa og við þurfum að vera í stakk búin til að taka á móti fólki sem leitar hingað í neyð og leitar til annarra ríkja Evrópu í neyð. Það mun auðvitað líka hafa töluverð áhrif á umhverfið og loftslagsmálin og mun ekkert hægja á áhrifum loftslagsvánnar. Þess vegna hvet ég þessa ríkisstjórn eindregið til að endurskoða fjárframlög sín til þessa málaflokks, byrja að taka þetta alvarlega og átta sig á því að ef ekki er gripið til aðgerða núna þá er það aðeins of seint, af því að mín kynslóð þarf að moka upp eftir núverandi ráðamenn og þegar við tökum við keflinu verður það mögulega orðið of seint, því miður. Ég vona svo innilega að það komi ekki til þess.