153. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2022.

fjáraukalög 2022.

409. mál
[22:20]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Mjög merkilegt. Hérna á eftir er tillaga frá öllum í fjárlaganefnd um að greiða eingreiðslu til öryrkja vegna fjárheimilda sem eru þegar til staðar. Hérna erum við í þessari atkvæðagreiðslu að greiða atkvæði um að sú eingreiðsla nái í rauninni til sömu öryrkja sem eru bara nokkrum árum eldri. Allir eru að segja nei. Mér finnst það rosalega skrýtið. Ég segi já.