undanþágur frá samkeppnislögum í landbúnaði.
Virðulegi forseti. Aðeins um forsögu þessa máls sem er sannarlega í samráðsgátt, eða áform um að leggja það fram. Ég skipaði spretthóp í vor, eins og við munum, til að fara yfir þá grafalvarlegu stöðu í landbúnaði sem snerist um röskun á aðfangakeðju landbúnaðar með tilheyrandi verðhækkunum í stríði. Niðurstaða starfshópsins lá fyrir um miðjan júní og í kjölfarið gerði ég tillögur spretthópsins að mínum. Að hluta til snerist þetta um fjárframlög og að hluta til um tilteknar ráðstafanir og þar með talið það frumvarp sem hér er til kynningar. Ég kynnti þessar tillögur í ráðherranefnd um ríkisfjármál og í ríkisstjórn þar sem þær voru ræddar. Ein af þessum tillögum snerist um að það blasti við að nauðsynlegt væri að endurskipuleggja og hagræða í slátrun og kjötvinnslu þar sem bæði neytendur og bændur hefðu verulega hagsmuni af þeirri hagræðingu. Hópurinn lagði fram tiltekna aðferðafræði sem ráðuneytið vann svo áfram. Í raun má segja um frumvarpið sem byggði á tillögum spretthópsins, sem var svo kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember, að um hafi verið að ræða tímabundið úrræði til fjögurra ára. Það er það sem spretthópurinn leggur til. En með breytingunum er stefnt að því að styðja við endurskipulagningu og hagræðingu, eins og áður segir, með því að starfrækja félag um tiltekna starfsemi. Og það er svo að þetta samráð, sem hv. þingmaður er að kalla eftir, stendur yfir og ég held að það sé afar mikilvægt að þessi umræða fái gagnrýna og góða yfirferð. Ég fagna þeirri umræðu sem hefur átt sér stað og þegar hafa borist umsagnir sem eru til að undirstrika að það eru verulega mörg sjónarmið þarna undir sem þarf að draga fram í dagsljósið. Ég treysti því að hv. þingmaður taki þátt í þeirri umræðu.