fjárframlög til Sjúkratrygginga Íslands.
Herra forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra virðist telja að 100 milljónir séu nægilegar. Forstjórinn og starfsmenn stofnunarinnar eru því ekki sammála og forstjórinn segir upp. Það eru miklar kröfur gerðar til Sjúkratrygginga Íslands líkt og hæstv. ráðherra sagði hér fyrr í dag. Samkvæmt lögum eru gerðar miklar kröfur en fjármagn til að standa undir þeim lagaskyldum nægja alls ekki. Eftir stöndum við með heilbrigðiskerfi þar sem þeir sem eru vel stæðir geta farið til læknis en hinir ekki, heilbrigðiskerfi sem á að byggjast á samábyrgð og samtryggingu stendur ekki undir nafni.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra beint út: Af hverju hefur það tafist svona lengi að semja við sérgreinalækna og tryggja rekstur Sjúkratrygginga? Hvað stendur í veginum og hver er hvatinn, ef einhver er, til að ráðast í samninga?