málefni öryrkja.
Forseti. Hér hefur mörgum mikilvægum spurningum verið varpað fram, margar hverjar er varða ekki einungis útfærslu velferðarkerfisins okkar heldur einnig grunnhugsunina sem liggur því að baki. Mig langar að bæta einni spurningu í sarpinn sem varðar einmitt grundvallarhugmyndafræðina að baki örorkulífeyriskerfinu okkar. Ein stærsta hindrunin sem öryrkjar mæta í samfélaginu er í formi staðalmynda sem bæði endurspeglast í kerfinu eins og við höfum byggt það upp og orsakast af því. Sú hugsun að öryrkjar búi óhjákvæmilega við fátækt er ekki eingöngu staðreynd fyrir mjög margt fólk vegna þess hvernig kerfið er byggt upp, heldur er það hugmyndin að baki kerfinu. Það er sú hugsun að ef öryrki eignast t.d. nýjan bíl eða gengur eða rúllar um í fínum fötum þá hljóti eitthvað að hafa klikkað. En hvers vegna ættu öryrkjar endilega að vera fátækari en annað fólk? Er það mannsæmandi hugmyndafræði að fólk sé, bara vegna skerðingar eða fötlunar, dæmt af ríkinu til að lifa undir fátæktarmörkum?
Örorkubætur eru fyrir margt fólk einu tekjurnar sem það hefur vegna þess að vinnumarkaðurinn er illa móttækilegur fyrir skertu starfshlutfalli. Það er því við hæfi að spyrja hvað hæstv. ráðherra ætlar sér að gera til að stuðla að því að vinnumarkaðurinn verði öryrkjum opnari með því að bjóða upp á hlutastörf í meiri mæli, viðunandi aðlögun á vinnustað og jafnvel mannsæmandi laun. Þegar ráðherra hefur lagt vinnumarkaðnum línurnar, hvaða breytingar ætlar hann þá að gera til að draga úr áhrifum launa á bætur? Það er ekki til of mikils ætlast að það sé raunverulega þess virði fyrir fólk að velja að nota þá takmörkuðu getu og orku sem það hefur í vinnu og að það framlag sé ekki einskis metið, heldur sýni kerfið að framlag þess og orka þess séu metin til jafns við framlag og orku annars fólks.