Málefni öryrkja.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson er með beiðni um sérstakar umræður um málefni öryrkja til að vekja máls á mikilvægi þess að þessi málaflokkur sé uppi á borði öllum stundum, að vandað sé til verka þegar um hann er fjallað og breytingar eru gerðar. Því miður hefur það ekki alltaf verið þannig. Þeir einstaklingar sem þurfa stöðu sinnar vegna að vera á örorku búa við það að einhverjir aðrir en þeir sjálfir ákveða hver efnahagsleg og félagsleg staða þeirra er. Þar á ég við fyrst og fremst við stjórnvöld. Hv. þingmaður hefur í ræðum sínum í gegnum árin og í spurningu í þessari umræðu talaði um kjaragliðnun milli örorkulauna og hækkunar lægstu launa. Því miður er það svo að þessi kjaragliðnun er staðreynd sem ber að lagfæra. Unnið hefur verið markvisst að því undanfarin ár að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin í gegnum svokallaðar krónutöluhækkanir kjarasamninga. Það hefur fært launafólki á lægri launum verulegar kjarabætur umfram aðra og það hefur verið stefna verkalýðshreyfingarinnar í mörg undanfarin ár að viðhafa slíka samningsgerð. Hins vegar hafa stjórnvöld ekki farið þá leið þegar kemur að því að hækka laun öryrkja og úr því þarf að bæta.