153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

Málefni öryrkja.

[16:16]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Um leið og ráðherra Vinstri grænna kom í ráðuneyti félags- og vinnumarkaðsmála var lagt af stað í löngu tímabæra vegferð til að umbylta þessu löngu staðnaða og flókna kerfi, og þó fyrr hefði verið. Strax um síðustu áramót hækkuðu greiðslur vegna örorku og viðmið vegna framfærsluuppbótarinnar um leið og aðrar greiðslur, enda samkvæmt lögum um almannatryggingar. Eins og hér hefur komið fram þá er búið að leggja fram frumvarp sem skiptir gríðarlega miklu máli og hefur verið kallað eftir, þ.e. að tvöfalda atvinnutekjur lífeyrisþega. Þetta eru risastór skref og þetta er í áttina að réttlátara kerfi. Gengur það of hægt? Já, það gengur of hægt. Þetta er stórt og viðamikið og krefst þess að við förum vel ofan í það og náum einhvers konar sátt um það. Hluti af þessu er líka að lengja endurhæfingartímabilið. Ég tel það gríðarlega mikilvægt og það hefur sýnt sig að við erum að ná árangri og hér er verið að gera ráð fyrir því að við getum jafnvel lengt það um tvö ár til viðbótar þeim þremur sem nú er miðað við. Það er svo mikilvægt að grípa þá einstaklinga sem við getum hugsanlega hjálpað til að taka þátt í lífinu aftur, til þess að fara út á vinnumarkaðinn. Ég er viss um að við þekkjum mörg marga einstaklinga sem þarna eru undir, það geri ég, sem hafa lofsamað að fá þetta tækifæri og sjá jafnvel fram á að þurfa að vera örlítið lengur í endurhæfingu í staðinn fyrir að falla inn á varanlega örorku. Þetta skiptir máli því að það hlýtur alltaf að vera markmið okkar að fækka þeim sem þangað fara frekar en að fjölga. Um leið verð ég að segja að það þarf sannarlega að taka utan um þann hóp sem verður að vera á örorku og getur ekki unnið. En það er líka þannig, og ég hef sagt það áður í þessari pontu, að atvinnurekendur þurfa að koma með í þessa vegferð. Hið opinbera þarf að ganga á undan með góðu fordæmi en atvinnurekendur þurfa að koma með í þessa vegferð þannig að fólkið sem getur ekki unnið fulla vinnu, jafnvel ekki nema brotabrot úr starfshlutfalli, geti fengið vinnu. Við erum fyrst og fremst að tala um fólk sem býr við geðrænan vanda (Forseti hringir.) þannig að það er ekki auðvelt fyrir fólk að fá vinnu. En ég vil bara ítreka: Við erum að takast á við flókin og stór verkefni. Það er ástæða til þess að vera bjartsýn miðað við það sem við höfum nú þegar komið áleiðis.