153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

Málefni öryrkja.

[16:23]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég ætla aðeins að halda áfram með þær spurningar og vangaveltur sem ég ljáði máls á hér í fyrri ræðu minni varðandi þær staðalmyndir sem liggja að baki mörgum þeirra reglna sem gilda um atvinnuþátttöku öryrkja. Sú hugsun að öryrkjar séu í eðli sínu byrði á kerfinu, á samfélaginu, gegnsýrir allt kerfið. Á sama tíma veldur staðalmynd því að kerfið gerir fólki ókleift að leggja sitt af mörkum í formi virkrar þátttöku á vinnumarkaði. Annaðhvort getur þú unnið eða ekki. Líkt og ég sagði í lok ræðu minnar hér áðan er ekki til of mikils ætlast að það sé raunverulega þess virði fyrir fólk að velja að nota þá takmörkuðu getu og orku sem það hefur í vinnu og að það framlag sé ekki metið einskis virði með skerðingum og lækkunum sem koma einmitt til vegna þeirrar rammskökku grundvallarhugsunar að öryrkjar eigi alls ekki að geta unnið neitt og aldrei og ef þeir geta það og gera það sé eitthvað í ólagi í kerfinu og við því þurfi að bregðast með skerðingum. Kaldhæðnislega eru slíkar skerðingar oft rangnefndar hvatar í bótakerfinu. Fyrir öryrkja eru slíkir svokallaðir hvatar hins vegar neikvæðir, þeir hvetja ekki heldur letja.

Langstærstur hluti fólks vill vera þátttakendur á vinnumarkaði og leggja sitt til með vinnuframlagi með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. Það á við um öryrkja jafnt sem annað fólk. Allt fólk vill hafa hlutverk í samfélaginu. Við eigum að byggja upp kerfi sem gefur fólki færi á því og hvetur það til þess. Byggjum upp kerfi þar sem þátttaka alls fólks í samfélaginu, í öllum þáttum þess, er velkomin, sjálfsögð og mikils metin.