153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

Málefni öryrkja.

[16:25]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi í fyrri ræðu minni þá koma í vinnu velferðarnefndar óhjákvæmilega fram ýmsar ábendingar vegna atriða sem betur mega fara í regluverki sem snertir öryrkja. Mig langar að tiltaka hér tvö dæmi þótt þau séu vissulega fleiri. Fyrst langar mig að nefna að lífeyrisþegum er gert erfitt fyrir að leigja frá sér húsnæði þar sem leigutekjur skerða lífeyrisgreiðslur að fullu án þess að tekið sé tillit til kostnaðar við rekstur húsnæðis. Almennt njóta leigutekjur einstaklinga hins vegar 50% skattfrelsis og fjármagnstekjuskattur er lagður á tekjur umfram það. Öryrkjar geta þó einmitt lent í þeirri stöðu að neyðast til að flytja úr eigin húsnæði um lengri eða skemmri tíma af sömu ástæðu og þeir falla af vinnumarkaði. Annað sem þarfnast sérstaklega skoðunar núna er einmitt samspil endurhæfingar og greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Það er mikilvægt að fólk sem sækir sér endurhæfingu tapi ekki vinnumarkaðstengdum réttindum eins og í fræðslusjóðum eða Fæðingarorlofssjóði. Þetta atriði er einmitt nátengt áherslunum um að umbætur í málefnum öryrkja felist í fjölbreyttara og sveigjanlegra atvinnulífi og vinnumarkaði.

Við erum með tvö mikilvæg frumvörp til umfjöllunar hér á Alþingi þessa dagana sem tengjast auknum sveigjanleika á vinnumarkaðnum, annars vegar hækkun frítekjumarks og lækkun skerðingarhlutfalls og hins vegar mögulega lengingu endurhæfingartímabils. Þessum frumvörpum ber að fagna og frekari umbætur eru í farvatninu eins og fram hefur komið, t.d. heildarendurskoðun greiðslukerfis vegna skertrar starfsgetu og endurhæfingar þar sem gert er ráð fyrir að greiðsluflokkar vegna skertrar starfsgetu verði þrír: sjúkragreiðslur, endurhæfingargreiðslur og örorkulífeyrir.