orð þingmanns í hliðarsal.
Frú forseti. Ég ætlaði nú ekki að lengja þessa umræðu en ég má til með að koma hingað upp til að lýsa mig ósammála hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim, sem sagði að hér hefðum við átt langa og góða umræðu um þetta mál sem við vorum að ljúka hér rétt áðan. Hún var góð, þökk sé þátttöku hv. þingmanns. Löng var hún ekki. 2. umræða í þessu máli stóð í 40 mínútur en það liggur ekki fyrir hvað einhverjum úr Sjálfstæðisflokki finnst málið, einhverjum úr Vinstri grænum, einhverjum úr nokkrum öðrum stjórnarandstöðuflokkum en Pírötum finnst, vegna þess að ja, eini Sjálfstæðismaðurinn sem sást hér nálægt salnum gerði það bara til að vera með einhverja skítapillu úr hliðarsal á varaþingmann sem stendur í pontu. Ég ætla ekki að gera lítið úr getu hv. þingmanns, sem er nú ein af þeim sleipari þegar hún kemur hingað inn sem varamaður, en ég hélt að við reyndum nú að haga okkur aðeins í kringum varafólkið sem kemur hér inn. En mannasiðir eru náttúrlega ekki eitthvað sem Ásmundi Friðrikssyni er sérstaklega tamt.