153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

orð þingmanns í hliðarsal.

[20:04]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Mig langaði líka að benda á að þær umræður sem eiga sér hér stað eru ekki eingöngu eitthvert trúnaðarspjall sem við eigum. Í fyrsta lagi, eins og bent hefur verið á, er þetta samtal sem á sér stað hér fyrir augum þjóðarinnar og það er mjög mikilvægt að hún verði vitni að því. En í ofanálag eru umræður hér á þingi líka lögskýringargögn og skipta mjög miklu máli þegar kemur að því að beita þeim lögum sem við samþykkjum hér eftir að þau hafa farið í gegn. Því er það mjög mikilvægt að við komum hingað upp og lýsum okkar afstöðu, lýsum okkar skoðun, okkar túlkun á því sem er í gangi hér, förum jafnvel yfir forsögu hlutana til að lagaákvæðin megi skoðast og túlkast í samhengi þegar þar að kemur. Ég vil bara leggja áherslu á þetta. Það að eiga lýðræðislega umræðu í þessum þingsal er algerlega andstaðan við það að gera grín að þessu þingi, það er þvert á móti.