153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

farþegaflutningar og farmflutningar á landi.

279. mál
[20:14]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég er ekki viss um að ég og hv. þingmaður höfum endilega verið að tala um það sama vegna þess að í 2. gr. frumvarpsins og 3. gr. er verið að tala sérstaklega um farþegaflutninga og í 3. gr. um almennt rekstrarleyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða til farþegaflutninga. Það eina sem ég er að reyna að skilja er, ef í þessum lögum er verið að búa til ákveðið módel í kringum það hvernig farþegaflutningar ferðaþjónustuaðila eru, hvort fyrirtæki eins og Uber skilgreini sig ekki bara sem ferðaþjónustuaðila og byrji að bjóða upp á ferðir frá miðbæ Reykjavíkur kannski uppi í hinn fræga ferðamannastað Breiðholt. Ég held kannski að hv. þingmaður átti sig á hvað ég er að reyna að spyrja um. Ég hef áhyggjur af því að eins og þetta er sett upp hérna þá sé jafnvel hægt að finna gat í kerfinu þar sem lög um leigubifreiðar, sem verið er að endurskoða, eigi ekki lengur við vegna þess að fyrirtæki eins og Uber eða einhver álíka stofna hreinlega fyrirtæki með almennt rekstrarleyfi til reksturs sérútbúinnar bifreiðar. Hvað er sérútbúin bifreið? Þarf að vera „spoiler“ að aftan eða hvað þarf til?