þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Frú forseti. Það er lagaskylda á ríkinu að fjármagna 172 NPA-samninga á þessu ári, árið 2022, og Héraðsdómur Reykjavíkur hefur reyndar lagt þetta sérstaklega til grundvallar í dómsmáli um rétt manneskju til viðeigandi þjónustu. Þetta eru mjög skýr lagafyrirmæli, 172 samningar. Þetta er ekki bundið neinum fyrirvörum um meðalkostnað vegna hvers og eins samnings, ekkert slíkt er að finna í lögunum. Samt hefur ríkið bara fjármagnað innan við 100 samninga, ég held að þeir hafi verið 90 síðast þegar ég vissi, á sama tíma og tugir eru á biðlista eftir þessari þjónustu. Ég ætla bara að leyfa mér að fullyrða hér í þessum ræðustól að með þessu hafi lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir verið brotin á vakt hæstv. ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Þessi lögbrot hafa haft mjög alvarlegar afleiðingar, sérstaklega fyrir einstaklinga sem búa við mestu fötlunina og þurfa mest á aðstoð að halda. Án þessara samninga stendur þessu fólki eiginlega ekkert annað til boða en dvöl á stofnun þar sem fólk getur ekki lifað sjálfstæðu lífi á eigin forsendum eins og það hefur rétt til samkvæmt þessum lögum.
Í þessu frumvarpi hæstv. ráðherra er í raun og veru verið að gangast við þessum vanefndum að því leytinu til að verið er að færa skylduna til fjármögnunar 172 samninga tvö ár fram í tímann og þannig er í raun verið að lækka þetta úr 172 samningum niður í 145 samninga frá og með næstu áramótum. Ég vil fá að spyrja hæstv. ráðherra: Á ekki fólkið sem hefur beðið eftir þessari þjónustu á vakt þessarar ríkisstjórnar og í raun verið neitað um hana með ólögmætum hætti, á þetta fólk, sem hélt væntanlega að eitthvað væri að marka lagafyrirmæli sem samþykkt eru á Alþingi, ekki heimtingu á afsökunarbeiðni frá hæstv. ráðherra fyrir hönd þessarar ríkisstjórnar?