almannatryggingar.
Herra forseti. Ég vil óska hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til hamingju með þetta frumvarp og öryrkjum öllum. Ég fagna sérstaklega þeim sinnaskiptum sem hafa orðið hjá stjórnarmeirihlutanum í þessum efnum, það er nefnilega ekki nema ár síðan hæstv. ráðherra greiddi hér sjálfur atkvæði gegn sams konar tillögu hér á Alþingi um að frítekjumark atvinnutekna hjá öryrkjum yrði híft upp í 200.000 kr. á mánuði. Það væri fróðlegt að heyra aðeins frá hæstv. ráðherra um hvað hefur breyst í millitíðinni og hvers vegna honum fannst rétt að láta öryrkja bíða enn eitt árið eftir þessari mikilvægu breytingu.
Svo vil ég líka fá að spyrja hæstv. ráðherra, af því að hér er bara verið að snerta við bráðabirgðaákvæði almannatryggingalaga og í raun tekur þessi hækkun frítekjumarksins eingöngu til ársins 2023 samkvæmt lagabókstafnum, hvort öryrkjar megi ekki örugglega treysta því að hér sé um að ræða varanlega hækkun á þessu frítekjumarki þótt það sé gert með þessari leið að breyta þessu bráðabirgðaákvæði. Er ekki alveg á hreinu að hér sé verið að hækka frítekjumarkið varanlega og að hæstv. ráðherra öryrkja á Íslandi muni standa vörð um að svo verði?