153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

almannatryggingar.

534. mál
[23:42]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, það er vissulega rétt að þessu er fyrir komið í bráðabirgðaákvæði. Það er hins vegar meining okkar að þetta sé komið til að vera. Í þeirri heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu sem er fyrir höndum þá þurfum við auðvitað að skoða enn þá betur hvert samspil akkúrat þessa þáttar er við ýmsa aðra þætti. Þess vegna er kannski eðlilegt að koma þessu fyrir í bráðabirgðaákvæði eins og sakir standa.

Hv. þingmaður spurði mig líka hvað hefði breyst. Ég verð að svara því þannig að fyrir ári síðan þá lá ekki eins vel fyrir og liggur núna með hvaða móti við myndum ráðast í þær breytingar sem um er að ræða í þeirri heildarendurskoðun sem nú á sér stað. En ég er hins vegar algerlega þeirrar skoðunar að við séum að stíga jákvætt og mikilvægt skref með þessu frumvarpi, með þessari tillögu sem hér er lögð fram. Það má kannski segja að við séum með því frumvarpi sem þegar hefur verið lagt fram í haust um lengingu á endurhæfingarlífeyri, með þessu frumvarpi sem er lagt fram hér og ég var að mæla fyrir og síðan því frumvarpi sem er á dagskrá á eftir, búin og byrjuð að stíga þau skref sem mikilvæg eru í þeirri heildarendurskoðun sem verður núna á næstu misserum og við hyggjumst láta taka gildi í áföngum.