almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Auðvitað hefði verið best ef þetta hefði gerst fyrir ári en ég fagna því að hæstv. ráðherra sé smám saman að átta sig betur á því hvað hann vill gera þegar kemur að almannatryggingakerfinu okkar og grípa til aðgerða. Auðvitað þarf að finna framtíðarlausn á þessum víxlverkunum á greiðslum almannatrygginga og lífeyrissjóða þannig að þetta frítekjumark sem hér er verið að hækka hangi ekki alltaf á einhverju bráðabirgðaákvæði. Ég vil hvetja ráðherra til dáða í þeim efnum. Ég er feginn að þessi sinnaskipti hafi orðið vegna þess að það kom mér svolítið illa á óvart hvernig þetta var fyrir ári, þegar stjórnarliðar greiddu ekki bara atkvæði gegn hækkun frítekjumarksins heldur töluðu mjög gegn slíkri hækkun og lögðust meira að segja gegn henni áður en fram kom formleg tillaga um hana. Ég átti orðaskipti hér við hæstv. fjármálaráðherra sem fannst alveg fráleitt að kalla eftir því að frítekjumark atvinnutekna hjá öryrkjum yrði hið sama og hjá eldra fólki. Mér finnst gott að heyra hæstv. félagsmálaráðherra einmitt beita þessum sömu rökum hér í dag fyrir tillögu sinni og komu fram hér á Alþingi í fyrra. Hér kom svo hv. þingmaður sama flokks upp og sagði að hækkun frítekjumarksins myndi, með leyfi forseta, „einungis gagnast þeim sem nú þegar eru best settir í kerfinu“. Það er auðvitað bara vitleysa að tala hér eins og þetta sé einhver voðaleg lúxustillaga. Þetta er ósköp einfaldlega aðgerð sem gagnast gríðarlegum fjölda öryrkja og ekki bara þeim sem eru eitthvað ægilega vel eða best settir í kerfinu. Þetta er bara réttlætismál eins og Öryrkjabandalag Íslands hefur margbent á og það er mjög ánægjulegt að stjórnarliðar skilji þetta. En þetta þýðir þá að í fyrra var annaðhvort verið að kokka upp einhver falsrök gegn tillögum okkar í minni hlutanum eða að sinnaskipti hafa orðið.
Batnandi fólki er best að lifa, dropinn holar steininn og óþarfi að vera að velta sér upp úr þessu. Ég ætla bara að óska hæstv. ráðherra aftur til hamingju með þetta og Öryrkjabandalaginu (Forseti hringir.) með að barátta þess sé að skila árangri. Við jafnaðarmenn munum auðvitað halda áfram að setja þrýsting á ríkisstjórnina, taka slaginn með fólki sem reiðir sig á almannatryggingakerfið og brýna ráðherra til dáða.