almannatryggingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mig langar að nota tímann sem ég hef hérna til að ítreka mikilvægi þess að við eigum áfram í góðu samstarfi við hagaðila, þar með talið Öryrkjabandalag Íslands, sem við höfum átt við þessa endurskoðun sem er að eiga sér stað, þar með talið við gerð þessa frumvarps. Það skiptir mjög miklu máli vegna þess að þessi mál hafa áður strandað á því að það hafa ekki allir aðilar verið fyllilega sáttir og er mjög mikilvægt að við náum utan um þessar breytingar með þeim hætti að hér ríki sem mest sátt um þær.
Ég vil líka nefna að ég hef áhuga á því, þegar nær dregur því að við séum komin lengra í þessari heildarendurskoðun, að eiga samtal við þingflokkana um það, vonandi í janúar eða febrúar. Ég held að það sé mikilvægt til þess að við getum tekið umræðuna á fyrri stigum því að ég held að það skili sér alltaf vel.