153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

almannatryggingar.

534. mál
[23:48]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og fagna því að hér sé verið að hækka frítekjumarkið. Það er mjög mikilvægt fyrir öryrkja að þetta gangi í gegn og ég vona að þetta fari sem hraðast í gegnum þingið. Mig langaði aðeins, og jafnvel þarf ég annað andsvar í það, að spyrja hæstv. ráðherra út í það að síðan 2009 hafa endalaust bæst við bráðabirgðaákvæði þar sem við erum alltaf að gera það sama, við erum alltaf að fara með sama málið í gegnum þingið, aftur og aftur. Þurfum við ekki að fara að hætta að vera með svona bráðabirgðaákvæði almennt, ekki bara í þessu frumvarpi heldur mörgum öðrum? Þurfum við ekki að fara að hætta að vera með svona bráðabirgðaákvæði sem gera það að verkum að við þurfum að vera hér langt fram á nætur að afgreiða frumvörp af því að við erum bara rétt að lengja það um eitt ár í senn? Hér erum við að sjálfsögðu að gera meira en bara að lengja, en ég er svona almennt að tala um það hvort við þurfum ekki að vera duglegri að vera ekki í bráðabirgðaákvæðunum heldur bara setja þetta inn, í þessu tilfelli inn í b-lið 2. mgr. 16. gr.