almannatryggingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Spurning hv. þingmanns lýtur kannski almennt að því hvernig við förum með bráðabirgðaákvæði. Þau geta vissulega oft verið til mikils gagns, oft til þess að koma málum áfram sem hafa kannski styttri líftíma. Við erum t.d. í því máli sem ég er að fara að flytja hér á eftir, að leggja til að fella niður bráðabirgðaákvæði sem eru í raun ekki lengur í gildi, svo dæmi sé tekið. En af því að hv. þingmaður kvartar yfir því að við séum langt fram á nætur þá held ég að það sé svona almennt ekki vegna bráðabirgðaákvæða, það er kannski út af einhverju öðru. Hvað varðar þetta mál sérstaklega, það frumvarp sem hér er lagt fram og það bráðabirgðaákvæði sem hér eru lagðar til breytingar á, þá kemur það til skoðunar við heildarendurskoðunina sem er í gangi með hvaða hætti við komum þessu fyrir til lengri tíma litið. Ég á þá von á því að það verði ekki gert með bráðabirgðaákvæði, án þess að ég ætli að úttala mig um það með hvaða hætti verður búið nákvæmlega um frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. En ég held að við séum öll sammála um að stefna að því að hafa það frekar inni í lagaákvæði en bráðabirgðaákvæði.