153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

almannatryggingar.

534. mál
[23:52]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara nefna, vegna þess að hæstv. ráðherra sagði í andsvari rétt áðan að það væri mikilvægt að huga að góðu samráði við hagsmunasamtök öryrkja, að stundum hefði afstaða þeirra — ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt, ég man ekki hvernig hann orðaði það nákvæmlega — hindrað eða átt þátt í að hindra að eitthvað næði fram að ganga, að það er alveg ljóst að hæstv. ráðherrar geta ekki kennt neinum öðrum um en sjálfum sér að þessi breyting, hækkun frítekjumarksins, sé ekki löngu orðin að veruleika. Höfum það í huga að þetta frítekjumark hefur staðið óhreyft síðan árið 2009. Nánast á hverju einasta ári hefur Öryrkjabandalag Íslands kallað eftir því að það hækki, þótt ekki væri nema til þess að láta það fylgja verðlagi í landinu, og það hefur staðið í stað allan þennan tíma. Öryrkjabandalagið hefur svo sannarlega ekki staðið í vegi fyrir því að þessi breyting nái fram að ganga heldur er það þvert á móti til marks um að barátta Öryrkjabandalagsins skili árangri að þessi breyting sé loksins að verða.