153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:30]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 474, um brottvísanir umsækjenda um alþjóðlega vernd, frá Þórunni Sveinbjarnardóttur. Einnig hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 522, um áskrift af dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum, frá Birni Leví Gunnarssyni. Þá hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 477, um viðbrögð við greiningu á alvarlegum sjúkdómi við vísindarannsókn, frá Oddnýju G. Harðardóttur. Að lokum hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 263, um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum, frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.