153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

Störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er ársafmæli stórra og digurbarkalegra yfirlýsinga og kosningaloforða Sjálfstæðisflokksins um að Ísland væri lágvaxtaland. Á sama tíma er líka ársafmæli fjölskyldu í smáíbúðahverfinu með 50 millj. kr. óverðtryggt lán til 40 ára. Greiðslubyrði þeirrar fjölskyldu hefur hækkað úr 180.000 kr. í 330.000 kr. Ríkisstjórnin er búin að útvega henni þetta vaxtaumhverfi. Greiðslubyrði þessarar fjölskyldu hefur aukist um 150.000 kr. á þessu ársafmæli yfirlýsingar Sjálfstæðisflokksins um að Ísland væri lágvaxtaland.

Nokkrar aðrar staðreyndir mætti nefna um þessa glæsilegu og stöðugu efnahagsstjórn. Ísland greiðir hæstu vaxtagjöldin innan OECD, við erum með átta til tíu sinnum hærri vaxtagjöld heldur en öll Norðurlöndin. Ítalía, Grikkland og Portúgal skulda tvisvar til þrisvar sinnum meira en við. Samt erum við með miklu hærri vaxtagjöld heldur en þessar skuldugu þjóðir. Svo yppta menn bara öxlum og segja: Þetta er bara svona. Það má aldrei ráðast að rótum vandans, aldrei. Svo heldur þessi snilld áfram með fjárlögunum og fjárlagafrumvarpinu sem eru algerlega ósjálfbær, sem er grafalvarlegt mál. Svo berja ráðherrar í ríkisstjórn Íslands sér á brjóst og segja: Þetta er svo glæsilegt hjá okkur. Við erum að auka tekjur ríkissjóðs. Tekjur sem aukast fyrst og fremst út af viðskiptahalla. Þetta eru ósjálfbærar tekjur. Og hvað gerir ríkisstjórnin? Hún gerir það sem á ekki að gera, setur þetta allt saman í útgjöld í stað þess að greiða niður skuldir með þeim tekjum sem við fáum vegna viðskiptahallans. Það eru stóralvarleg merki hér á ferð, rauð ljós blikka um allt en ríkisstjórnin ypptir bara öxlum og segir: Þetta bara verður svona, ríkisstjórnin verður að halda saman.