153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[14:12]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Það er algjör veisla að koma hingað inn, sérstaklega á tímum eins og þessum. Hér var ég áðan í störfum þingsins og ætlaði að fara með ræðu en hv. þm. Ásmundur Friðriksson var á undan mér og fór með skemmtilega ræðu sína um RÚV og nafngreindi dagskrárgerðarmann þar og hreytti í hann orðum. Því spyr ég forseti: Er þetta venjan? Er þetta eitthvað sem er gert vanalega hér á okkar hv. Alþingi, að nota ræðupúlt Alþingis til að koma skoðunum okkar á framfæri til að mynda um Ríkisútvarpið sem er styrkt af ríkinu? Og síðast þegar ég vissi var fjármálaráðherra í Sjálfstæðisflokknum? Ég bara spyr, forseti: Er þetta venjulegt? En það er samt líka gaman að sjá samstöðuna hér og sjá að þingmenn taka þetta ekki í mál og það er bara ágætisandi í hópnum í dag. Það er svo gaman að sjá stjórnarþingmenn koma upp í pontu hér og tala og líka hreyta stundum orðum úr sér þarna í hliðarsalnum. En ég hef bara gaman af þessu.