orð þingmanns í störfum þingsins.
Herra forseti. Hér spyr hv. þm. Ásmundur Friðriksson hvert hlutverk fjölmiðlafólks sé. Þá langar mig að varpa spurningunni til baka og spyrja: Er það hlutverk okkar stjórnmálamanna að níða skóinn af fjölmiðlafólki sem okkur hugnast ekki héðan úr ræðustól Alþingis? Ég hygg að við séum vel flest á þeirri skoðun að svo sé ekki. Við höfum önnur tækifæri til að gagnrýna. Og það þarf ekki heldur hliðarsal til. Við getum bara gert það eins og siðuðu þjóðfélagi sæmir. Varðandi síðan hitt, hversu langt við erum tilbúin að ganga til að verja listræna túlkun, spurning sem reyndar var beint til formanns Viðreisnar, þá ætla ég að leyfa mér a.m.k. að svara fyrir mína hönd: Hversu langt erum við tilbúin að ganga til að verja listræna túlkun? Býsna langt, herra forseti, býsna langt.