153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[14:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka forseta fyrir að grípa inn í umræðuna hérna í störfum þingsins og gera athugasemd við orðalag hv. þingmanns, það var alveg tilefni til þess. Í umræðum hér koma frammíköll héðan og þaðan og stundum eru þau alveg málefnaleg, stundum eru þau jafnvel í þökk þess sem er að halda ræðu, það er verið að koma ýmsum ábendingum á framfæri, stundum málefnalegum, stundum ekki. Þar liggja ákveðin mörk sem stundum er erfitt að gera greinarmun á eins og er kannski núna. Ég myndi almennt séð biðja bara um málefnalega gagnrýni en henni var ekki fyrir að fara í þessari ræðu hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar, langt í frá, enda beindi virðulegur forseti ámælum til hv. þingmanns. Það var mjög viðeigandi og við tökum, held ég, velflest hérna hjartanlega undir það eins og hefur komið fram í þessari fundarstjórn.