orð þingmanns í störfum þingsins.
Herra forseti. Þetta snýst um ritskoðunartilburði valdastéttarinnar. Þeir sem sitja í krafti meiri hluta Alþingis hafa býsna mikil völd. Við höfum öll völd, við höfum öll 63 það vald að geta útvarpað skoðunum okkar úr þessari pontu en þau sem sitja hér sem meiri hluti, með ríkisstjórnina, með fjárveitingavaldið hafa meiri völd. Þau verða að átta sig á ábyrgð sinni. Þau verða að átta sig á ábyrgð sinni þegar þau hjóla í fjölmiðlafólk af því að það eru ritskoðunartilburðir og við myndum líta svo á úti um allan heim. Ef við horfum örlítið út fyrir landsteinana þá sjáum við hvað er að gerast í ráðstjórnarríkjum þar sem verið er að loka á (Forseti hringir.) frjálsa fjölmiðla, þar sem verið er að beita þöggunartilburðum, (Forseti hringir.) eins og við sjáum hér ítrekað (Forseti hringir.) hjá einstaka þingmönnum. Við þurfum aðeins að hugsa út í þetta. Það er ekki alveg sama hvað við segjum hérna.