um fundarstjórn.
Forseti. Í samhengi við þessa umræðu um Ríkisútvarpið eru ríkisstjórnarflokkarnir einmitt að leggja til lækkun á framlögum til Ríkisútvarpsins í þessari 2. umr. hérna þar sem nefskatturinn sem við borgum öll á hverju ári mun ekki renna allur til Ríkisútvarpsins. Það á að fara í einhverjar smá tilfæringar og það eru rúmlega 300 milljónir eða eitthvað svoleiðis sem hann minnkar um, eitthvað á að taka tillit til þess að fjölgunin sem er þarna undir gjaldstofninum renni ekki öll — það eru einhver svona skilgreiningaratriði fram og til baka. En niðurstaðan er sú að peningurinn sem við borgum á hverju ári í nefskatt til Ríkisútvarpsins rennur í ríkissjóð og fer ekki allur til Ríkisútvarpsins einhverra hluta vegna. Þetta var á síðasta kjörtímabili þegar verið var að afnema markaðar tekjur en þá var samt ákveðið loforð, að þetta væri sérstakur tekjustofn, sérstakur skattur og hann myndi alla vega fara beint til Ríkisútvarpsins. Það væri heiðarlegast að lækka einfaldlega nefskattinn sjálfan ef það á að lækka framlög til Ríkisútvarpsins en ekki taka hluta af þeim pening í eitthvað annað.