153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka formanni hv. fjárlaganefndar fyrir framsöguna og að mörgu leyti ánægjulegt samstarf nú í vetur. Mig langaði til að kalla eftir skoðun hv. formanns á framsetningu fjárlaga inn í haustið og þeirri staðreynd að hv. fjárlaganefnd þurfti að bíða fram á síðustu stundu til að fá í rauninni endanlegt yfirlit yfir hver útgjöld og tekjur ríkissjóðs yrðu á næsta ári, og varðandi þetta verklag sem felst í því að hæstv. ríkisstjórn heldur nefndinni í frekar föstum og erfiðum skorðum þar til hún mætir á blaðamannafund rétt fyrir jól til að kynna stórtækar breytingartillögur upp á 50 milljarða kr. Þetta er auðvitað kynnt sem einhvers konar stórsókn. Hv. formaður nefndarinnar talaði um að hér væri verið að standa vörð um heilbrigðiskerfið en ég held að mörg okkar sem tóku við umsagnarraðilum í þessu ferli höfum áttað okkur á því að ef þetta fjármagn hefði ekki komið hefði stefnt í stórkostlegan niðurskurð víða í heilbrigðiskerfinu. Hér er einfaldlega verið að fylla upp í skörð og göt sem hefðu haft skelfilegar afleiðingar. Mín upplifun, og ég held að ég tali fyrir fleiri í minni hlutanum í hv. fjárlaganefnd, er að þar sé komið mikið ríkisstjórnarræði í fjárlagavinnuna og það gerir vinnuna tiltölulega erfiða. Mig langar að fá viðbrögð hv. formanns við þessu vinnulagi. Mig langar líka að fá viðbrögð við þessari framsetningu á heilbrigðismálapakkanum, að um stórsókn sé að ræða, í ljósi þess að þetta eru tillögur sem áttu að vinna á móti stórfelldum niðurskurði. Við sjáum hér aðstæður í landinu þegar kemur að stöðu Sjúkratrygginga, nú síðast með brotthvarfi yfirmanns þar. Mig langar að fá fram skoðanir hv. þingmanns á þessu máli.