153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla bara að taka undir það eins og ég hef gert á nefndarfundum okkar. Og af því að ég gleymdi því nú í lokin ætla ég að þakka hv. þingmönnum í nefndinni fyrir afar gott samstarf og þolinmæði, vegna þess að þetta er ekki búið að vera sérstaklega gott. Ég er ekki ánægð með þetta verklag, bara svo því sé haldið til haga og ég hef sagt það. Í ljósi þess hversu rúman tíma við höfum haft núna þá á þetta ekki að þurfa að vera svona. Þetta á ekki að þurfa að taka stórfelldum breytingum á milli umræðna. Við getum líka alveg velt því fyrir okkur, eins og ég hef svo sem velt upp, hvort í fyrsta lagi hin síðari hagspá þurfi að koma fram svona seint. Þurfum við að uppfæra og þar af leiðandi bíða svona lengi eftir því hvort við erum að vinna með tölurnar eins og hér er verið að gera? Ég hef kallað eftir því að áætlanagerð sé betri, áætlanagerð ráðuneytanna þarf að vera betri. Það er bara þannig. Það þýðir ekki að mínu mati að við þurfum að — og við eigum ekki að þurfa að gera svona stórfelldar breytingar ef áætlanagerðin er góð og það held ég að ráðuneytin viti. Við höfum alveg komið því, held ég, til skila. En það er líka partur af því samtali sem við þurfum sem nefnd að eiga og höfum ekki síst rætt við fjármálaráðuneytið um. Þetta varðar líka framsetningu fjárlaganna sjálfra, gagnsæi þeirra og annað, af því að það er líka skortur á gagnsæi að mínu mati í fjárlögunum. Ég hef verið sammála þeirri nálgun og mér finnst þessi framsetning ekki góð hvað varðar heilbrigðiskerfið. En svo sannarlega er það samt sem áður þannig að við erum að setja mikla peninga í kerfið. Við höfum verið að gera það og við þurfum líka að fylgjast talsvert vel með og reyna að sjá fyrir okkur þrátt fyrir þessar aukningar hvert aurarnir fara. Ég held að það sé m.a. okkar í fjárlaganefnd að kynna okkur það enn þá betur.