153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, hv. þingmaður, ég er ekki með það sundurliðað hjá mér í augnablikinu. Það er mjög auðvelt að komast að því nákvæmlega hvernig þetta er. Ég tel að við séum, eins og ég sagði áðan, að mæta því sem við erum að mæta og ég hlakka til að heyra ræðu hv. þingmanns þar sem hann fer ítarlega ofan í það. Það að færa til í heilbrigðisþjónustunni kostar kannski á endanum ekki mikið minni peninga. Það verður kannski sannarlega með einhverjum hætti hægt að segja að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. Verið er að semja og fjölga úrræðum þannig að ég held að hv. þingmaður þurfi að færa talsvert betri rök fyrir því en hann drap á hér.

Varðandi fjárfestingu og rekstur þá er mjög stór hluti rekstur, en nákvæma tölu hef ég ekki. Ég get kannski sagt hv. þingmanni hana hér á eftir. Ég ítreka enn og aftur að við erum að standa með peningastefnunni. Ég tel að það sé afar mikilvægt og ég held að hv. þingmaður viti það. En ég held að skoðanamunur á því hvernig eigi að reka ríkið sé talsvert mikill á milli okkar, a.m.k. miðað við það sem ég hef heyrt frá hv. þingmanni. Þar held ég að liggi þessi grundvallarágreiningur, sem ég hlakka til að hlusta á þegar hv. þingmaður dregur hann fram hér á eftir, um hvernig eigi að reka ríkissjóð á árinu sem fram undan er.