fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, andsvarið, og þakka sömuleiðis fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu hausti. Varðandi aðhaldskröfu á lögregluna — auðvitað fögnum við því í minni hlutanum, a.m.k. í Samfylkingunni, að komið er til móts við þá aðhaldskröfu með sértækum tillögum hjá meiri hlutanum. Það sem er áhugavert í því samhengi, og til að gæta fullrar sanngirni veit ég að meiri hlutinn hefur vakið athygli á því í sínu áliti, er að þessi aðhaldskrafa sé með þessum hætti yfir höfuð. Þetta er annað árið í röð, minnir mig, þar sem meiri hlutinn grípur inn í þessa aðhaldskröfu. Það er eitthvað sem ætti að senda skýr merki til ríkisstjórnarinnar um að það þurfi að breyta þessu fyrirkomulagi og við vitum það fyrir víst sem höfum setið þessa nefndarfundi, og ég held að því hafi verið lýst yfir opinberlega, að dómsmálaráðuneytið hefur viljað þrýsta á að fá svipaða aðhaldskröfu og önnur grunnþjónusta í landinu. Ég ætla rétt að vona að þegar við förum inn í fjármálaáætlunarumræðuna í vor verði tekið tillit til þess í þessu samhengi vegna þess að þetta gerir það að verkum að mannaráðningar verða mjög erfiðar í þessum embættum vegna þess að þrátt fyrir að komið hafi verið til móts við þetta í eitt skipti þá þýðir það að það er samt ófyrirsjáanleiki fyrir framtíðina.
Varðandi veiðigjöldin þá vil ég að halda því til haga að við lítum ekki á þetta sem skattheimtu heldur gjöld fyrir nýtingu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. En ég get tekið undir með hv. þingmanni að staða sjávarútvegsfyrirtækja er auðvitað mjög misjöfn og við vitum það, held ég, öll hér inni að arðsemin er mjög misjöfn eftir stærð. Stærstu útgerðirnar, sem halda á mestum fiskveiðikvóta, eru í allt annarri stöðu en minni fyrirtæki í dreifðum byggðarlögum. Þess vegna leggjum við sérstaka áherslu á það í útfærslu og umræðu um þetta mál að þetta sé útfært út frá stærðarálagi, að það séu þau sem haldi á stærstu heimildunum sem greiði slíkt álag, ekki minni útgerðir.