153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:06]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Ég ætla að byrja aðeins á breytingartillögunum svo ég gleymi þeim ekki eins og ég hef oft gert áður. Hér erum við með fjórar eða fimm léttar breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið. Fjárlagafrumvarpið eins og það leggur sig er dálítið mikill gallagripur og þessar breytingartillögur sem eru hérna eru ekki ætlaðar til að gefa einhverja heildarsýn á það. Ég ætla að fjalla aðeins um það þegar ég fer yfir nefndarálitið og skoðanir okkar á þessu almennt séð. Þessar breytingartillögur eru smá lagfæring á nokkrum augljósum göllum. Til að byrja með eru þarna 4 milljarðar vegna kirkjujarðasamkomulagsins sem er enn þá verið að greiða fyrir — löngu, löngu búið að borga andvirði þeirra eigna sem liggja þar undir. Það á einfaldlega að henda þessu kirkjujarðasamkomulagi í ruslið. Síðan eru það 2 milljarðar í almenningssamgöngur á nokkrum forsendum í rauninni. Það er búinn að vera samningur frá 2012 vegna fjármögnunar til Strætó, til almenningssamgangna almennt, sem hefur ekki verið verðlagsuppfærður og greiddur í heildina þannig að þetta er svona smá uppgjör á því en samt ekki, en það er ætlast til þess að útfærsla á þessu geti verið svipuð og í Loftbrúnni, ákveðin niðurgreiðsla á tímagjaldakortum. Þarna eru 200 milljónir vegna netöryggismála sem fara í ákveðinn viðbragðssjóð fyrir þær stofnanir sem glíma við eftirlit með netöryggismálum. Það er gríðarleg þörf á því þessa dagana. Það er framlag í umhverfismál upp á 850 milljónir. Þarna eru aukatekjur vegna ETS-kerfisins sem eiga að sjálfsögðu að renna í þennan verkefnasjóð sem geymir tekjur vegna þess.

Svo að lokum eru það húsnæðismálin. Það eru 800 milljónir í stuðningsframlög. Þarna er í raun líka gert ráð fyrir því að 2 milljarðar, sem eru á þessu ári, færist yfir á næsta ár þannig að þetta endar í u.þ.b. 4,5 milljörðum. Grunnurinn þar á bak við er að það sé alla vega nægt fjármagn til að vera með stuðningsframlög fyrir 4.500 íbúðir sem skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gerir ráð fyrir að þurfi að byggja til þess að fullnægja óuppfylltri íbúðaþörf.

En svo ég fari aðeins í nefndarálitið. Ég ætla að byrja aðeins almennt. Ég ætla að tala aðeins um það hvað við erum að gera rosalega margt vitlaust, rosalega margt rangt. Þá byrja ég á því sem ég hef kallað lögbundin verkefni. Hér á Alþingi setjum við lög um heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, réttindi fatlaðra, öryrkja, aldraðra, heilan helling af lögum. Framfylgd þessara laga, þær skyldur sem þessi lög leggja á stofnanir til að sinna ákveðinni þjónustu eða réttindum fyrir borgarana, t.d. eins og varðandi NPA-þjónustu eða um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu og ýmislegt annað — þetta eru lögbundin verkefni. Við erum búin að samþykkja lög um að hér skuli sinna þessum störfum, þessum verkefnum og að fólk eigi að hafa rétt á því að nálgast ákveðna þjónustu. Þessu fylgir kostnaður. Það er ekkert flóknara en það.

Ég held að skýrasta dæmið í umræðunni um fjárlögin 2023 hafi komið þegar dómsmálaráðuneytið og Fangelsismálastofnun komu til fjárlaganefndar og útskýrðu að það væri bara neyðarástand, það væri allt í skralli, það væri ekki nægilega góður búnaður. Fangar gætu ekki hitt fjölskyldur sínar um helgar, það væru líkamsárásir sem væri hægt að koma í veg fyrir ef það væri betri aðstaða og þar fram eftir götunum. Sú staða er til komin vegna þess að þessi málaflokkur hefur verið vanfjármagnaður. Svo einfalt er það. Það er ekki verið að sinna þeim verkefnum sem lög kveða á um, við skulum hafa það algerlega kristalskýrt. Það er verið að sleppa ákveðnum skyldum og ákveðinni þjónustu, ákveðnum réttindum af því að það fæst ekki fjárheimild fyrir því. Þá myndi ég vilja vita sem þingmaður hér á löggjafarsamkomunni: Af hverju ekki? Svörin sem ég fæ eru mjög, mjög fá. Forstjóri Fangelsismálastofnunar lýsti því þannig að þau gerðu fjárhagsáætlun fyrir raunhæfar fjárheimildir sem þau telja sig geta fengið til að reka verkefni stofnunarinnar, ekki fjármálaáætlun um hvað það kostar að reka stofnunina samkvæmt lögum og sinna allri þeirri þjónustu sem við á Alþingi höfum samþykkt að eigi að veita. Allt í lagi. Það er fjárhagsáætlun fyrir stofnunina sem er bara ekki til, hefur aldrei verið til og það er rosalega skrýtið. Dómsmálaráðuneytið fær hins vegar þessa fjármálaáætlun sem Fangelsismálastofnun telur vera raunhæfa. Dómsmálaráðuneytið fær slíkar fjármálaáætlanir frá öllum stofnunum, frá sjálfu sér líka, um það hvað þær telja að þær geti raunhæft fengið til að sinna þeim fjölbreyttu verkefnum sem það ráðuneyti og undirstofnanir eiga að sinna og senda það áfram til fjármálaráðuneytis. Þar eru skilaboðin einfaldlega þessi, bæði frá fjármálaráðuneyti og frá ráðherranefnd um ríkisfjármál, í rauninni bara ríkisstjórninni: Nei, þið fáið ekki svona mikinn pening, þið fáið svona mikinn pening. Þá er einfaldlega farið til baka í dómsmálaráðuneytið og einstakar stofnanir, til Fangelsismálastofnunar, og sagt: Nei, þið fáið ekki 500 milljónir, þið fáið bara 400. Og þá þarf að gera nýja rekstraráætlun miðað við þær fjárheimildir óháð því hvaða verkefni þarf að skerða miðað við lögbundin verkefni.

Þetta er gríðarlega alvarlegt því að Alþingi er ekki upplýst um það hvaða þjónustuskerðingu fjárlögin valda. Við segjum bara: Já, frábært. Hérna er rosalega stór rammi, fullt af milljörðum, 1.300 milljarðar í heildina. Það er meira en síðast, æðislegt. En hvað þýðir það í raun og veru fyrir þau lögbundnu verkefni sem eru sett upp og þá þjónustu sem á að veita en er ekki verið að veita? Við fáum aldrei að vita það. Þá getum við ekki tekið upplýsta ákvörðun um það að jú, þrátt fyrir að við höfum samþykkt þessi og hin lög þá ætlum við ekki vegna ýmissa ástæðna, sem gætu verið hverjar sem er af hvaða tilefni sem er, að fjármagna ákveðin réttindi þetta mikið þetta árið o.s.frv. Þá munum við alla vega fá að heyra rökin fyrir því en við fáum það ekki, við fáum ekki að vita þau. Samkvæmt lögum um opinber fjármál á nefnilega að vera kostnaðar- og ábatagreining. Hérna er dálítið mikilvægur munur — ég skipti aðeins um gír: Hérna er ég annars vegar að tala um lögbundin verkefni, bara grunnkostnað þess að sinna þeim lögum, þeirri þjónustu og þeim réttindum sem við höfum samþykkt á Alþingi. Síðan kemur eitthvað sem heitir stefna stjórnvalda. Það er viðbót við lögbundin verkefni, þ.e. hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að gera umbætur og betrumbætur? Hvernig á að gera eitthvað hagkvæmara? Hvernig á að gera eitthvað með meiri réttindi eða ýmislegt svoleiðis? Það er stefna stjórnvalda sem er í rauninni umfram lögbundin verkefni og þessa stefnu stjórnvalda á að kostnaðarmeta. Það á að vera ábatagreining. Það á að vera greining á mismunandi kostum, valkostagreining, og svo á að vera forgangsröðun.

Það sem er áhugavert við þetta er að við sjáum rosalega lítið muninn á þessu tvennu. Í eiginlega öllum tilfellum þar sem verið er að skoða fjármálaáætlun og fjárlög er stefna stjórnvalda listuð upp, einhver ákveðin átaksverkefni, og það er yfirleitt sagt „innan ramma“, sem sagt: Við ætlum að gera þetta fyrir sömu peninga og við höfum alltaf gert. Við ætlum að auka gæði fyrir sömu peninga og við höfum alltaf notað. Yfirleitt kosta aukin gæði meira fjármagn að einhverju leyti, t.d. styttri biðlistar. Gæðin eru þau að þurfa ekki að bíða eins lengi. Það þýðir yfirleitt meiri mannafla til að sinna því eða nýja tækni. Það gæti verið hagkvæmara að koma með nýja tækni. Það gæti þá leitt til kostnaðarminnkunar, en það er aldrei útskýrt — aldrei útskýrt. Það er kjarninn í því vandamáli sem við stöndum frammi fyrir með þessi fjárlög. Þau koma fram í haust, augljóslega vanfjármögnuð, ef ekki nema af þeirri ástæðu að það er hrúgað heilum helling af pening í varasjóðinn og bara sagt: Já, og svo þegar við erum búin að komast að einhverri niðurstöðu um eitthvað þá ætlum við að setja peninginn á réttan stað.

Þetta segir mér bara ýmsa ekki svo góða hluti um samstarf innan ríkisstjórnarinnar. Óhjákvæmilega sýnir þetta okkur að ríkisstjórnin kemur sér ekki saman um það hvernig á að skipta þessum fjármunum. Og svo einhverra hluta vegna núna í nóvember þegar það kemur ný þjóðhagsspá frá Hagstofunni, sem sýnir nýja verðbólgu og nýjar þjóðartekjur og alls konar svoleiðis, þá er allt í einu hægt að gera heilan helling, heilan helling upp á 50 milljarða í viðbót. Slík ríkisfjármál ganga ekki upp. Það er ekki hægt að segja að bara af því að efnahagssveiflan er að fara í enn aðra áttina, að við ætlum að gefa afslátt af þeim verkefnum og skyldum og réttindum sem við erum búin að setja hérna með lögum. Við þurfum að vita hver fjármögnun þessara verkefna er útgjaldalega séð og síðan tekjur á móti. Við vitum að tekjur sveiflast fram og til baka eftir hagsveiflunni. Útgjöldin gera það aðeins síður þó að verðlag, að sjálfsögðu, og kjarasamningar hafi þó nokkuð mikil áhrif þar á því að mikið af því eru launaástæður og kostnaður við ýmislegt sem er háð verðbólgu. En þetta þarf ríkisstjórnin að útskýra, hvernig hún hefur jafnvægi á þessu. Og án þess að geta séð hvert kostnaðarmat lögbundinna verkefna er þá getum við aldrei séð hvort það er jafnvægi í ríkisfjármálunum eða ekki.

Fjármálaráð hefur farið yfir þetta og komið með þessar ábendingar. Nýjasta ábendingin er síðan 2021, síðan í fyrra, um að það sé 2,5% halli miðað við verga landsframleiðslu á ríkissjóði, 2,5% halli. Og það er ekkert búið að gera til að laga þennan halla. Hallinn birtist í raun og veru þegar hagkerfið er í ákveðnu jafnvægi, augljóslega ekki þegar það er í uppsveiflu því að þá er verið að taka eitthvað af uppsveiflunni til þess að borga niður þennan halla. En að jafnaði erum við ekki í uppsveiflu, það bara virkar ekki þannig. Að jafnaði kemur það illa út í ríkisfjármálunum, býr til verðbólgu, býr til kostnað, rétt eins og húsnæðisstefna ríkisstjórnarinnar hefur gert undanfarin ár. Þannig að ef ég kæmi að þessu sem leikmaður úti í bæ og ætti að samþykkja fjárlög ríkisins fyrir heilt ár, hvað ætti ég að vilja vita? Hvað mynduð þið vilja vita? Hvernig myndir þú fjármagna það sem þú vilt gera? Ég myndi kannski byrja á því að pæla hvert hlutverk ríkisins er í þessu stóra samhengi hlutanna og það er kannski hægt að byrja á því að pæla í hvort það sé þörf á þessu apparati yfirleitt. En það er líklegra að fólk kæmist að þeirri niðurstöðu að það þyrfti að vera ákveðinn samfélagslegur grunnrekstur, t.d. lögregla og dómstólar. Ég held að sama hversu anarkískt fólk er þá kemst það alla vega að þeirri grunnniðurstöðu að við þurfum að passa upp á lögræðisregluna og eftirfylgni með henni. En til að vita hvað lögregla og dómstólar eiga að gera þá þarf einmitt lög og þar af leiðandi eitthvert fyrirbæri eins og okkur hérna, hvernig sem það er útfært. Það kostar óhjákvæmilega einhverja fyrirhöfn, sama hvaða aðferð er notuð; það þarf að greiða lögreglu og dómurum og öðru réttindagæslufólki laun fyrir störf sín.

Og síðan er önnur starfsemi ríkisins sem er kannski tæknilega séð óþarfi en staðreyndin er hins vegar sú að það er alltaf eitthvað annað sem tínist til og sitt sýnist hverjum hversu gáfulegt það er, að ýmislegt annað sé verkefni ríkisins. Almennt séð hefur verið víðtæk samstaða um að heilbrigðiskerfi, menntakerfi, félagslega velferðarnetið, sameiginlegar auðlindir og samgöngukerfið séu rekin eða a.m.k. fjármögnuð af hinu opinbera. Svo eru það samskipti við umheiminn. Sumir vilja að hér sé rekin ríkistrú á sama tíma og það á að vera trúfrelsi, en aðrir vilja menningarstyrki, landbúnaðarstyrki, fjölmiðlastyrki, stjórnmálastyrki og alls konar aðra atvinnustarfsemi og sýnist sitt hverjum um hvað er nauðsynlegt og hversu nauðsynlegt hvert þessara verkefna er. Sumum finnst allt eiga að vera í ríkisrekstri og sumum finnst ekkert eiga að vera í ríkisrekstri og allt þar á milli. En hver svo sem skoðun hvers er þá ættum við að vilja vita ýmislegt um tillögur ríkisstjórnarinnar um þessa 1.300 milljarða kr. sem á að eyða í alls konar verkefni á næsta ári. Kannski svimar fólk yfir 143 milljörðum sem eiga að fara í sjúkrahúsþjónustu eða kannski blöskrar fólki að sjá alla biðlistana, ástandið á bráðamóttökunni og hvernig nota þarf sjúkrahús sem hjúkrunarheimili. Kannski klórar fólk sér í hausnum yfir því að þjóðkirkjan fái 4 milljarða og sóknargjöld, mér finnst það stórkostlega skrýtið, og kannski skilur fólk ekki hvað er verið að eyða miklum peningum í loftslagsmál og rukka há kolefnisgjöld þegar ekki er augljóst í hvað þeir peningar eiga að fara eða hvernig hægt er að ná markmiðum stjórnvalda í þeim málaflokki. Kannski finnst fólki markmiðin vera of hátt sett eða allt of lágt.

Nú er það svo að heilbrigðismál eru kostnaðarsamasta verkefni ríkisins í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, samtals tæplega 328 milljarðar kr. á fimm málefnasviðum. Félagsmálin eru næstumfangsmest með 326 milljarða, rétt tæplega heilbrigðismálin. Þriðja umfangsmesta málefnasviðið eru mennta- og menningarmál með 133 milljarða og svo vaxtagjöldin rétt á eftir með 127 milljarða. Ef við skoðum þetta frumvarp ríkisstjórnar til fjárlaga þá skiptir svo sem minna máli hvað fólki finnst um mismunandi verkefni. Það sem við eigum að vilja vita er skoðun stjórnvalda, af því að við erum að greina það hvernig stjórnvöld fara með þennan pening. Það er okkar verkefni. Við viljum að stjórnvöld rökstyðji hvers vegna þau þurfi 37 milljarða í málefni dómsmála, eða 35 milljarða eða hvað sem það er. Við viljum að stjórnvöld geti útskýrt af hverju þetta kostar svona mikið eða af hverju þetta er svona ódýrt og hvað verið er að gera til að gera þetta hagkvæmara. Það er það sem við viljum vita. Við reynum að spyrjast fyrir en almennt séð fáum við ekki svör. En það er bara grundvallaratriði að við vitum hvað lögin kosta, hvert matið er á kostnaðinum við að reka þetta.

Svörin sem ég hef fengið þegar ég spyr eru bara: Síðast í fjárlögum fengum við svona mikið og þar af leiðandi kostar það svona mikið. En það er rangt af því að við sjáum biðlista, við sjáum skort á þjónustu og ýmislegt svoleiðis á fullt af mismunandi málefnasviðum og augljóslega kostar það meira eða þá að það er verið að gera eitthvað óhagkvæmt. En aldrei fáum við svör, ekki heiðarleg svör alla vega, útúrsnúninga ef eitthvað er. Til dæmis ef stjórnvöld segjast vilja efla verknám þá viltu vita hver staðan er í dag, þ.e. hversu margir eru í námi og vilja komast í nám, hvernig áætlað er að aðstæður breytist, kannski eru að koma stórir árgangar á næstu árum, og svo bara hvað efling verknáms þýðir eiginlega í hugum stjórnvalda. Undanfarin ár hefur nefnilega oft verið fjallað um það hversu fáir komast að, hversu mörgum er hafnað og áhyggjur stjórnvalda af því. Samt er staðreyndin sú að það eru stjórnvöld sem úthluta skólum ákveðið mörgum nemendum og segja við skólann að ekki verði greitt fyrir fleiri, þannig að þegar skólarnir fá fleiri umsóknir en sem nemur fjölda nemenda sem þeir fá greitt fyrir þá segja þeir að sjálfsögðu: Nei, við megum bara taka við 980, þó að það séu 1.200 að sækja um. Svo verða allir brjálaðir þegar rúmlega 200 er hafnað. En það var ákvörðun stjórnvalda að fjármagna bara 980 eða hver sem talan er. Þannig að hvað þýðir efling verknáms og hverjar eru í alvörunni áhyggjur stjórnvalda þegar það er ákvörðun stjórnvalda að fjármagna ekki fleiri pláss?

Á málefnasviði menntamála eða framhaldsskóla er tilgreind stefna ríkisstjórnarinnar um að fjölga útskrifuðum úr starfs- og tækninámi, með leyfi forseta:

„Þar er markmiðið að hækka hlutfall skráðra og útskrifaðra nemenda í starfsnámi samanborið við nemendur í námi til stúdentsprófs.“

Það eru að sjálfsögðu jafn margir nemendur í heildina, það á bara að breyta hlutföllunum þannig að fleiri útskrifist úr verknámi heldur en úr námi til stúdentsprófs. En þetta kostar af því að verknám er dýrara en bóknám og þá er augljósa spurningin: Hversu mikið? Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 1,3 milljörðum meira til framhaldsskólanna á næsta ári miðað við árið í ár. Frábært, er það ekki? 1,3 milljarðar, það er hægt að gera fullt fyrir það væntanlega. En þegar nánar er að gáð er t.d. Tækniskólinn að fá 100 milljónir í viðbót, VMA fær rúmlega 30 milljónir og Borgarholtsskóli fær 35 milljónir á meðan Menntaskólinn í Reykjavík, sem er helmingi minni skóli en Borgarholtsskóli, fær 53 milljónir aukalega. MR fær næstum því helmingi meiri pening aukalega á næsta ári heldur en Borgarholtsskóli en samt á að efla verkmenntanám. Þetta gengur ekki upp því að verknámið er dýrara og já, þegar nánar er að gáð þá dugar þetta ekki einu sinni fyrir verðbólgu, til að bæta gráu ofan á svart. En hvað er eiginlega að gerast? Samkvæmt frumvarpinu er einfaldlega sagt, með leyfi forseta:

„Fjárheimild málaflokksins er aukin um 200 m.kr. til þess að efla menntun í landinu og að auki er almennt útgjaldasvigrúm málaflokksins 100 millj. kr.“

Hvað þýðir þetta eiginlega, að það eru 200 milljónir til að efla menntun í landinu og útgjaldasvigrúm upp á 100 milljónir? Stutta svarið er einfaldlega að stjórnvöld hafa ekki hugmynd um það og geta þar af leiðandi ekki svarað spurningum um það hvað þau ætli að gera við þennan pening. Þau ætla bara að nota hann eftir hentugleika í einhver verkefni til eða frá. Það er nefnilega tafla í fjármálaáætluninni, sem ég fer yfir í nefndaráliti mínu, þar sem er farið yfir hvernig eigi að ná markmiði 1, sem er að, með leyfi forseta: „Hækka hlutfall nemenda sem ljúka starfs- og tækninámi og jafna kynjadreifingu.“ Og hvernig á að ná markmiðinu? Það er farið yfir þrjú atriði; það á að greina þörf á húsnæði, það á að fjölga nemendaplássum og vinna að jafnari kynjadreifingu og einfalda leiðir eldri nemenda til að fá hæfnismat. Saman hljómar þetta eins og það eigi að stimpla fólk fyrr út með hæfni svo að það losni pláss fyrir aðra. Það er jú markmið 2 að fjölga nemendum sem ljúka prófi á tilskildum tíma fyrir sama pening og í fyrra. Svo að lokum á að auka gæði menntunar í framhaldsskólum innan ramma. Það þýðir að það á að nota sama pening til þess að ná betri árangri.

Þá spyr maður: Í hvað fara þessar 200 milljónir og 100 milljónir? Og þá komum við að glæru sem við fengum frá ráðuneytinu í kynningu í fjárlaganefnd. Þar voru tilgreind nokkur útgjaldaefni og þegar við greinum þetta aðeins eru þessar 300 milljónir notaðar til að koma til móts við fjölgun nemenda í sjálfstætt starfandi skólum í samningssambandi við mennta- og barnamálaráðuneytið. Það kemur til móts við hallarekstur vegna námsorlofs og til að greiða niður hagræðingarkröfu málaflokksins, annað nafn yfir aðhaldskröfu. En hversu há er aðhaldskrafan, ef fólk mynd vilja giska á það áður en við förum lengra? Haldið þið að það sé hærri eða lægri krafa en þær 300 milljónir sem er verið að leggja í að fjölga og efla menntunina? Aðhaldskrafan er hærri. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins er 392,8 milljónir, í almennum aðhaldskröfum eru 311,5 milljónir, sértækum aðhaldsaðgerðum 50 milljónir, það er skipting þar á milli, þ.e. 361 milljón í aðhaldskröfu og samtals 300 milljónir í útgjaldasvigrúm sem þýðir í rauninni ný verkefni. Þarna eru meira að segja sérstakar aðhaldsaðgerðir í viðbót upp á 50 milljónir, til að snúa hnífnum aðeins meira í sárinu. Þannig að orð og aðgerðir fara ekki alveg saman. Að efla starfs- og verknám getur þýtt að bæta við 300 millj. kr. í heilt framhaldsskólakerfi með annarri hendi og á sama tíma taka í burtu rúmlega 360 millj. kr. með hinni. Á sama tíma eiga allir að hlaupa hraðar, auka gæði og gera meira fyrir sama fjármagn og áður. Rúsínan í pylsuendanum er svo að það á að þróa áfram og innleiða reiknilíkan. Það er nefnilega gamalt og úrelt og tekur ekki tillit til ýmiss konar kostnaðarbreytinga, nýrra tækja og tækni og ýmislegs svoleiðis. Þarna búast allir við því að breytingarnar verði til hækkunar, hvað þá ef nemendum í starfs- og verknámi fjölgar hlutfallslega umfram þau sem eru í námi til stúdentsprófs þar sem það nám er dýrara. En nei, það verkefni á að vera innan ramma, sömu peningarnir og áður.

Ef ég fer yfir háskólana er nákvæmlega það sama uppi á teningnum nema að það endar í aðeins öðruvísi skringilegri niðurstöðu. Þegar ég summa upp tölurnar þar fæ ég út að það eru 1.404,8 millj. kr. í auknar fjárheimildir. Þetta er í skýringarmyndinni um bundin útgjöld og ný og aukin verkefni og samkvæmt myndinni eru samtals 2.391 millj. kr. í nýtt fjármagn. Munurinn þarna á milli er u.þ.b. 1 milljarður. Í útskýringar ráðuneytanna, útskýringar fjárlagafrumvarpsins vantar útskýringar á heilum milljarði, hvert hann eigi að fara. Við höfum ekki hugmynd um það. Þetta er dæmi um skort á gagnsæi í fjármálum ríkisins. Hérna er ríkisstjórnin að fara fram á heilan milljarð í eitthvað einhvers staðar á málasviði háskólans en finnst greinilega ekki þörf á að útskýra það frekar. Þetta er alveg með ólíkindum. Það er ekki einu sinni tekið fyrir í glærusýningum eða fjárlagafrumvarpinu; önnur útgjaldaefni 900 og eitthvað milljónir sem summast út, 5 milljónir þarna og hingað, og svoleiðis sem er hægt að fá sundurliðun á. Nei, ekki neitt.

Fjöllum aðeins um heilbrigðismálin. Þau eru eitt umfangsmesta verkefni ríkisins með rúmlega 328 milljarða útgjöld og einhverra hluta vegna kemur ríkisstjórnin með rúmlega 12 milljarða breytingar fyrir 2. umr. fjárlaga — ég held að ég hafi tekið 12 milljarðana inn í þessa 328. Hér er komin ein helsta ástæðan fyrir því að stjórnarandstaðan benti á að fjárlagafrumvarpið væri í rauninni óklárað þegar það var lagt fram í haust. Í heildina er ríkisstjórnin að bæta við rúmlega 50 milljörðum inn í 2. umr. fjárlaga og svo kemur meiri hluti fjárlaganefndar og bætir við 2,7 milljörðum í viðbót. Þá erum við komin upp í tæplega 54 milljarða, sem er alveg örugglega einhvers konar met miðað við að ekkert stórkostlegt hefur gerst frá framlagningu fjárlagafrumvarpsins. Það væri kannski skiljanlegt ef þetta stríð hefði brotist út eða kórónuveirufaraldurinn eða eitthvað svoleiðis þarna á milli, en það gerðist ekkert frá því í haust og þangað til núna sem getur útskýrt þetta mikinn mun. Þetta bara gengur ekki upp.

Þá myndi ég vilja spyrja: Hver er staðan í þessu stærsta verkefni ríkisins? Samkvæmt fjármálaáætlun eru helstu áskoranirnar að fjárhagsstaða Landspítala er mjög erfið og skortur hefur verið á hjúkrunarfræðingum. Ástandið er svona, eins og er sagt í fjármálaáætlun, með leyfi forseta:

„Mestur vandi tengist þó mönnun hjúkrunarfræðinga. Landspítali hefur þurft að loka rýmum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum, auk þess sem umtalsverður hluti þessara stétta mun hefja töku lífeyris á næstu árum.“

Lausnin á þessu er samkvæmt ríkisstjórninni að efla mönnun. Það hlýtur að vera að fjölga starfsfólki og nýta þekkingu þess sem best. Það hljómar skynsamlega. En hvernig á að fara að því? Jú, það eru tilgreind þrjú verkefni:

1. Vinna áfram með tillögur fjögurra vinnuhópa frá árinu 2020. Fullt af tillögum þar undir, misstórar. Kostnaður: Innan ramma. Fyrir sömu peninga og áður. Stórkostlegt.

2. Vinna úr og fylgja eftir niðurstöðum viðbragðsteymis um bráðaþjónustu. Hver er kostnaðurinn? Hann er innan ramma. Sömu peningar og áður. Þetta er bara grín.

3. Halda áfram framkvæmdum við Hringbraut. Stærsta verkefnið verður uppsteypa meðferðarkjarna, innkaup á útveggjum fyrir meðferðarkjarnann o.s.frv. Kostnaður: Innan ramma. Enda fjölgar það að byggja hús ekkert starfsfólki þó að kannski … (Gripið fram í: Hvaða rammi er þetta?) Hvaða rammi er þetta? er kallað hérna. Það er þessi heildarrammi um …(Forseti hringir.)

(Forseti (OH): Ekki samtal.)

Það er þessi heildarrammi, þessir 328 milljarðar í heilbrigðismál. Það er sem sagt það sem var í fyrra, það er hinn svokallaði fjárlagarammi. Svo koma nýjar tillögur frá ríkisstjórninni, stefna stjórnvalda, og það býr til fjárlagaramma næsta árs. Þegar er verið að segja að kostnaðurinn sé innan ramma er það ekki hluti af tillögum, sem sagt þessum bundnu útgjöldum eða útgjaldasvigrúmi eða niðurskurði sem býr til fjárlagaramma næsta árs, heldur er það hluti af ramma fyrra árs, sem sagt sömu peningar og áður. Ég bara skil ekki hvernig þessi verkefni geta fjölgað starfsfólki fyrir sama pening og er nú þegar í notkun, þ.e. innan ramma. Á næsta ári á samkvæmt fjármálaáætlun að vera næstum 3% minni starfsmannavelta á Landspítalanum, þetta er samkvæmt mælikvörðum í fjármálaáætlun. Það eiga að vera 1,5% minni veikindafjarvistir, sem ég held að sé mjög auðvelt af því að kórónuveirufaraldurinn er að hverfa. Það verður í rauninni að miða þetta við ákveðinn grunn, það er þarna viðmið í fjármálaáætluninni, þannig að ég held að þetta sé óháð veikindaaukningunni miðað við kórónuveirufaraldurinn. Þetta verður rosalega erfitt, mikil áskorun þarna því að það er gert ráð fyrir u.þ.b. 4% veikindahlutfalli almennt séð í kerfinu, svona heilsa fólks almennt. Stjórnunarlega séð er gert ráð fyrir 4% veltu vegna veikinda. Á Landspítalanum hafa þetta verið gegnumgangandi u.þ.b. 6–7% og þarna er verið að færa það niður í u.þ.b. 5%, bara á næsta ári. Það verður gríðarlega stór og mikil áskorun. Síðan er 11% hærra hlutfall hjúkrunarfræðinga sem á að vera á bráðalegudeildum. Þetta á að vera á næsta ári og er miðað við stöðuna eins og hún var 2020. Þá eru það 2% færri rými í notkun vegna sjúklinga sem bíða úrræða á spítalanum, 27% færri sem bíða í minna en sex klukkustundir frá því að innlögn er ákveðin, 32% fleiri sem hafa beðið skemur en 90 daga eftir liðskiptaaðgerð og 11% fleiri sem hafa beðið skemur en 90 daga eftir þjónustu á BUGL. Þetta eru markmiðin og það kostar starfsfólk og það kostar pening að ná þeim.

Hvort sem þessi verkefni sem ég taldi upp hérna áðan, að vinna með tillögurnar eða fylgja eftir niðurstöðum viðbragðsteymis eða þessi bygging, skila væntum árangri eða ekki þá kemur samt eitthvert fjármagn í þetta allt núna. Það er sérstaklega með þessum 12,2 milljörðum sem verið er að leggja inn á milli umræðna. Nánar tiltekið úr minnisblaði fjármálaráðuneytis til fjárlaganefndar, með leyfi forseta:

„Að frátöldum vaxtagjöldum er gert ráð fyrir mestri aukningu á framlögum til heilbrigðismála, eða sem nemur 12,2 milljörðum kr. Þar er gert ráð fyrir samtals 4,3 milljörðum kr. til að styrkja Landspítalann, Sjúkrahúsið á Akureyri og heilsugæsluna. Þá er jafnframt lögð til 3 milljarða kr. hækkun til að mæta umframútgjöldum hjá Sjúkratryggingum Íslands á árinu 2022“ — það er í rauninni leiðrétting, ég fer aðeins yfir það seinna — „sem hafa áhrif á árið 2023 að öðru óbreyttu og 2,2 milljarða kr. hækkun vegna leyfisskyldra lyfja en þar er verið að mæta veikleikum og skapa svigrúm til upptöku nýrra lyfja. Samtals er lagt til að veita 1,8 milljarða kr. til ýmissa verkefna til að auðvelda heilbrigðiskerfinu að glíma við eftirköst kórónuveirufaraldursins […].“

Samtals eru taldir upp 12,05 milljarðar. Það þýðir að það eru 150 milljónir í afgang, það er munur á milli þess og þessara 12,2, sem eiga þá að fara í heimahjúkrun og aðgerðir til að draga úr álagi í heilbrigðisþjónustu. Af þessum útgjöldum er í rauninni bara 5,1 milljarður sem er að fara í þessi verkefni sem voru talin upp hérna áðan. Umframútgjöld hjá Sjúkratryggingum Íslands er leiðrétting, lyfjakostnaðurinn er leiðrétting og kostnaðurinn vegna kórónuveirufaraldursins er eins konar vaxtakostnaður faraldursins fyrir heilbrigðiskerfið.

Á fundum fjárlaganefndar kom fram hjá ýmsum umsagnaraðilum að það vantaði u.þ.b. 150 stöðugildi, 110 hjúkrunarfræðinga og 40 á ýmsum stöðum öðrum út af styttingu vinnuvikunnar. Ég held að það hafi verið í heilbrigðiskerfið frekar en bara á Landspítalann. Það kostar þá u.þ.b. 1,7 milljarða með öllu, miðað við meðallaun hjúkrunarfræðinga, og því ætti að vera til nægur peningur til að ná a.m.k. þeim stöðugildum sem vantar miðað við þetta fjármagn sem er þarna. En í fjárlögum 2022 var hinn svokallaði reiknaði raunvöxtur, sem er í rauninni bara fjölgun og öldrun þjóðar sem veldur fyrirsjáanlega meira álagi á heilbrigðiskerfið, ekki hluti af fjárframlögum til Landspítalans. Sú upphæð sem var reiknuð í þann raunvöxt fór í verkefnið Betri vaktavinnutími og þar eru samtals rétt tæpir 2 milljarðar kr. Einnig er gert ráð fyrir því að um 2 milljarða hafi vantað vegna lyfja í fjárlögum ársins, sem endar í rúmum 4 milljörðum sem var bætt við í fjáraukalögum. Ríkisstjórnin bætir svo við alls 5 milljörðum, ekki til viðbótar við þá 4 milljarða. Miðað við ríkisreikning er þetta svona nokkuð nærri lagi. Árið 2021 voru 27 milljarðar í málefnasvið lyfja. Gert er ráð fyrir 25,5 í fjárlögum 2022, 1,5 milljörðum minna en áður sem er skrýtið, og Landspítalinn sagði þá að það vantaði 2,1 milljarð sem var mjög rökrétt niðurstaða miðað við hvernig árið á undan fór. En út af verðbólgu, stríði og ýmsu öðru hækkaði verð á lyfjum og það þurfti 4 milljarða en ekki 2,1 eins og Landspítalann benti á, sú kostnaðarhækkun var að sjálfsögðu ófyrirséð.

En núna kemur ríkisstjórnin með fjárlagafrumvarp sem setur tæplega 25 milljarða í lyf, sem er skrýtið. Þeir tæpu 5 milljarðar sem koma nú í breytingartillögum virðast nær því að vera raunhæf upphæð sem lagar þennan blekkingarleik sem ríkisstjórnin virðist hafa leikið við framlagningu fjárlagafrumvarpsins. Það þurfti víst að láta eitthvað líta aðeins betur út heldur en það var í raun og veru. Það getur ekki annað verið en að það hafi alltaf staðið til að borga þau lyf sem við þurfum á að halda þannig að ríkisreikningurinn hefði alltaf endað í raunkostnaði og fjárlagafrumvarpið á að sjálfsögðu að endurspegla mat okkar á því hvað raunkostnaður er. Það fer út í þessa umræðu sem ég talaði um hérna áðan, að uppfylla þjónustuþörfina og réttindin gagnvart lögunum. Ég held að lyfjamálin séu einna skýrasta og gagnsæjasta dæmið um málefnasvið sem endar nákvæmlega þar. Atvinnutryggingar eru annað, málefni fatlaðra og aldraðra líka, almannatryggingalögin, þó að ákvarðanir þar um, hverjar upphæðirnar eiga að vera, séu flóknari.

Þá standa eftir 1,4 milljarðar í þessi eflingarverkefni þegar búið er að draga frá reiknaðan raunvöxt og þess háttar sem voru listuð hér upp og eru innan ramma. Ef það á í alvörunni að gera eitthvað í þessu, efla mönnun og svoleiðis, þá eiga kannski 1,4 milljarðar að fara í það. Hér mætti hafa aðeins meira gagnsæi um það hvernig þessir fjármunir eiga að nýtast en hér má þó reikna með því að eitthvað vinnist niður af biðlistum og öðrum hnökrum í heilbrigðiskerfinu. Þetta er samt bara rétt rúmt 1% af heildarútgjöldum sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu þannig að það er erfitt að sjá þetta nema sem nokkuð annað en skekkjumörk. Sem dæmi var sérhæfð sjúkrahúsþjónusta rekin með 1,3 milljarða halla árið 2021. Það útskýrir afganginn af þessum milljörðum sem er sagður vera í eflingarverkefni. Því álykta ég, miðað við stöðuna eins og hún var í fyrra, þar sem þurfti að fara í ýmis aðhaldsverkefni til að ná rekstri Landspítala réttum megin við núllið, að það líti út fyrir að núverandi fjárframlög viðhaldi því ástandi. Við stöndum einmitt í þessari blekkingu að fjárlagafrumvarpið er lagt fram vanfjármagnað með tilliti til heilbrigðisþjónustu og svo er komið með 12 milljarða til að segja: Við erum að efla þetta, í alvörunni. En þegar við greinum þetta í sundur, tökum til hliðar kostnaðinn sem er vegna lyfjanna og vegna reiknaða raunvaxtarins o.s.frv., þá endum við í núlli. Það eru smávægileg aðhaldsverkefni sums staðar í kerfinu og eilítil átaksverkefni annars staðar. Ef kerfið í heild sinni væri að ná að sinna þjónustuþörf væri það bara hluti af eðlilegum rekstri. En það hefur hins vegar ítrekað verið lýst yfir neyðarástandi á vissum sviðum heilbrigðiskerfisins og óljóst hvernig komið verður til móts við það. Niðurstaðan er því að hér er ekki um niðurskurð að ræða miðað við fyrra ár heldur nær því að halda í horfinu. Ef það verður einhver árangur er það með endurskipulagningu innan ramma. Kaldhæðnislegt. Við skulum hafa þetta á hreinu. Þegar maður tekur saman allar tölurnar í heilbrigðisþjónustu þá eru þessir fjármunir sem núna er verið að leggja til að verði samþykktir ekki nein efling. Þetta er sami peningur og hefur alltaf þurft.

Næststærsta verkefni ríkisins eru félagsmálin. Í þau fara 326 milljarðar kr. Þetta eru málefnasvið aldraðra, örorku og fatlaðs fólks, fjölskyldumála, lýðheilsumála, húsnæðis- og skipulagsmála og vinnumarkaðsmála. Stærstu breytingarnar í fjárlagafrumvarpi eru 12,5 milljarðar aukalega í málefni aldraðra, tæplega 9 milljarðar í örorku og málefni fatlaðs fólks, tæplega 4,4 milljarðar í fjölskyldumál og tæplega 17 milljörðum minna í vinnumarkaðsmál vegna lægra atvinnuleysis en á síðasta ári. Varðandi málefni aldraðra, þó að nú sé verið að auka útgjöld um 12,5 milljarða, þá er í rauninni ekkert verið að gera. Þetta er bara vegna öldrunar þjóðar og svo er 1,1% aukning á lífeyri umfram verðbólguspá. Það er það eina sem er verið að gera, þessi 1,1% hækkun. Aftur er hægt að bera saman, þegar allt kemur til alls, og miða við launaþróun. Ef launaþróunin verður 1,1% umfram verðbólguspá á næsta ári þá er hér bara verið að uppfylla 69. gr. almannatryggingalaga. Ef launaþróunin verður meiri þá vantar upp á. Ef hún verður lægri er lífeyrir almannatrygginga að hækka miðað við launaþróun, sem væri fínt. Þar hefur ákveðin gjá myndast á undanförnum 20 árum, alla vega á málefnasviði örorku og fatlaðs fólks, u.þ.b. 60%. Og ef við tölum um þann málaflokk er miðað við 1,1% hækkun lífeyris almannatrygginga umfram verðbólguspá. Ef laun hækka ekki þá mun þetta vinna upp á móti þeirri gliðnun sem hefur orðið á kaupmætti lífeyris almannatrygginga undanfarna tvo áratugi. Samkvæmt skýrslu Kolbeins H. Stefánssonar þá er það sem vantar upp á árið 2022, með leyfi forseta:

„116.303 krónur á mánuði fyrir hámarksgreiðslur með heimilisuppbót og 111.939 krónur á mánuði fyrir hámarksgreiðslur án hennar. Uppsafnað tekjutap einstaklings með hámarksgreiðslur og heimilisuppbót á tímabilinu 2008 til 2022 er tæpar 13 milljónir króna á verðlagi janúar 2022 en um 11,7 milljónir á meðal samskonar einstaklinga sem nutu ekki slíkrar uppbótar.“

Þarna er þetta bara svart á hvítu, 14 ár, tæp milljón minna á ári sem þessi hópur er að fá miðað við launaþróun. Það er staðan sem við erum í.

Af hverju er sagt að það vanti eitthvað upp á þessar lífeyrisgreiðslur? Það er, eins og ég útskýrði hérna áðan, þessi svokallaði tvöfaldi lás; lífeyrir almannatrygginga á að hækka um það sem reynist hærra í vísitöluþróun, verðlagsþróun eða launaþróun. Staðan hefur hins vegar verið sú að hækkunin hefur verið nokkurn veginn mitt á milli. Hækkunin hefur verið á undanförnum 20 árum meiri en verðbólguþróun en minni en launaþróun. Þar liggur þessi munur. Samkvæmt lögum, ef lífeyrir hefði fylgt launaþróun, væri fólk með lífeyri almannatrygginga vegna örorku og fötlunar með 12–13 milljónum meira á ári miðað við hámarksgreiðslu. Það munar um minna fyrir þennan hóp sem er verst settur.

Það varð ákveðin breyting í fjárlögum í fyrra. Venjulega hefur lífeyrir almannatrygginga verið hækkaður í upphafi árs miðað við spá um verðbólgu og launaþróun á komandi ári. Núna er verið að gera það einmitt og það er verið að bæta við 1,1% umfram það. Því miður er algengt að spáin sé ekki nákvæm og yfirleitt er spáin of lág og þar liggur ástæðan fyrir þessari gliðnun. Spáin hefur verið of lág og það er gert ráð fyrir minni verðbólgu heldur en reynist síðan vera og einnig að laun hækki minna en raunin verður. Það leiðir til þessarar gliðnunar, að lífeyrir almannatrygginga hækkar hlutfallslega minna en laun allra annarra og stundum minna en verðbólgan meira að segja, en í heildina hefur hann hækkað meira en verðbólga. Það er t.d. út af einstaka leiðréttingum sem hafa verið gerðar af og til í gegnum árin. Staðan er sú að lífeyrir almannatrygginga hefur hækkað umfram verðlagsþróun en ekki umfram laun. En fyrir árið í ár var tekin upp nýbreytni eftir, ég ætla bara að segja það, mína gagnrýni á túlkun 69. gr. laga um almannatryggingar á undanförnum árum. Ég hafði ítrekað bent á þetta í mínum nefndarálitum en ég hafði kallað eftir upplýsingum frá upplýsingaþjónustu Alþingis sem sýndu hvernig þróunin hafði verið á undanförnum árum, uppfært með verðlagi og fleiru, og þar fengum við í hendurnar svart á hvítu hverju munaði frá því að lög um almannatryggingar tóku við árið 1997. Núna fyrir árið 2022 var vinnulagi við gerð fjárlaga því breytt og vanáætlaðri verðbólgu ársins á undan var bætt við stofn lífeyris fyrir næsta ár. Það leit hins vegar út fyrir að laun hefðu hækkað meira en verðbólgan og því varð samt ákveðin kjaragliðnun á árinu 2021. Nú er aftur leiðrétt fyrir vanáætlaða verðbólgu ársins 2022 og vegna þess hversu há verðbólgan var, sem er nú aftur leiðrétt fyrir stofn lífeyris fyrir árið 2023, er ekki ólíklegt að laun hafi hækkað minna en verðbólga. Líklega verður því engin kjaragliðnun á lífeyri almannatrygginga á árinu 2022, sem er jákvætt. Verðbólgan er ekki jákvæð en að það sé ekki kjaragliðnun er jákvætt.

Ég hvet til þess að það verði gerðar betrumbætur á því hvernig lífeyrir almannatrygginga er uppfærður á hverju ári. Ég hef lagt fram frumvarp um að nota sömu útreikninga og notaðir eru til þess að uppfæra laun þingmanna og ráðherra, með þeirri undantekningu að sérstakt tillit verði tekið til þess ef gerðir eru samningar um krónutöluhækkanir á vinnumarkaði. Þetta er dálítið mikilvægt atriði. Rifrildið um almannatryggingar hefur staðið um það hvernig eigi að túlka orðið launaþróun. Hver leggur sinn skilning í það. Ef launavísitalan er notuð þá sjáum við þessa gliðnun frekar auðveldlega. Ef við berum launavísitöluna saman við þróun launa hjá hinu opinbera, hjá sveitarfélögunum, þá sjáum við mjög mikla fylgni á milli þess sem segir okkur að launavísitalan er tiltölulega nákvæmt mælitæki á því hvernig raunlaun eru að þróast, launaþróunin. En fjármálaráðuneytið viðurkennir það ekki. Umboðsmaður Alþingis hefur einnig bent á það að þarna vanti betri skilgreiningar til þess að það sé hægt að reikna þetta rétt. Hins vegar erum við með skilgreiningar í lögum um það hvernig við uppfærum laun þingmanna, merkilegt nokk. Af hverju þá ekki að nota sömu skilgreiningar? Það er alla vega tillaga mín.

Að lokum í þessari yfirferð, ég næ ekki að fara yfir allt hérna, ætla ég að tala um húsnæðismálin. Eða nei, ég ætla að geyma húsnæðismálin þangað til í annarri ræðu og taka þau alveg sér af því að þau eru svo stór liður, bæði þau og loftslagsmálin þó að fleiri komi inn á það. Mig langar þá að tala aðeins um stærri framtíðarsýn sem ég hef mjög mikinn áhuga á og ég myndi vilja að við legðum aðeins meiri áherslu á anda laga um opinber fjármál í vinnu okkar hérna á Alþingi og að ríkisstjórnin gerði það. Ég myndi vilja setja upp eitthvað eins og „Ísland milljón“, hvernig lítur Ísland út þegar það búa milljón manns á Íslandi? Ef við hugsum ekki um það núna þá gerist það bara eins og fólki og sveitarfélögum hingað og þangað finnst hverju sinni og við endum í einhverju stjórnleysi um það hvernig Ísland lítur út í rauninni með milljón íbúa. Ef við myndum hugsa aðeins um það hvað þarf og hvernig við myndum vilja að Ísland líti út þegar hér búa milljón íbúar, þá myndum við kannski geta sett upp skipulag eða áætlanir sem hvetja til þess að sú sýn myndi raungerast, t.d. hvernig við myndum vilja að íbúabyggðin dreifðist. Að sjálfsögðu erum við ekki að fara í einhverjar harðkommúnískar aðgerðir um uppbyggingu blokka o.s.frv., til þess að þvinga fólk til að búa hér og þar. Þetta er í rauninni stór framtíðarsýn sem við myndum stefna að á einhvern hátt, t.d. með skattafsláttum, námsstyrkjum eða námsafsláttum á uppbyggingarsvæðum, þar sem við myndum vilja sjá meiri uppbyggingu; Sauðárkrók, Húsavík, Akureyri, Egilsstöðum eða eitthvað svoleiðis. Við myndum skilgreina ákveðin uppbyggingarsvæði, veita ákveðna náms- eða skattafslætti til að byggja upp nýja kjarna sem við myndum sjá fyrir okkur í heild sinni sem einhvers konar þjónustusvæði, sem aðrar borgir á Íslandi sem myndu geta borið uppi þjónustu eins og heilbrigðisþjónustu, samgönguþjónustu, líka við útlönd, svo við séum ekki með þennan flöskuháls sem suðvesturhornið er. Það eru ákveðin hagkvæmnisrök fyrir því að setja allt á sama stað, vissulega, en það er líka mjög ópraktískt að hafa flöskuháls. Það býður hættunni heim í rauninni þegar kemur einhvers konar álag vegna t.d. eldgosa, vegna slæms veðurs o.s.frv. Þá komumst við ekki í alla þessa þjónustu sem við erum búin að hrúga hérna á einn stað. Þá dugar ekki eitthvað eins og störf án staðsetningar eða að setja stofnanir hingað og þangað o.s.frv. þegar þar er ekki kjarna- og neyðarþjónustan, hún þarf að vera aðgengileg á fleiri stöðum. Í staðinn fyrir að vera að fljúga öllum hvaðanæva af landinu á suðvesturhornið þar sem þessi nauðsynlega heilbrigðisþjónusta er þá væru fleiri þjónustustaðir sem hægt væri að leita til til að dreifa álagi. En til þess að geta gert það þá þurfum við að hugsa um hvernig það eigi að líta út. Hvernig ber það sig? Ef eitthvað er þá væri bara gagnlegt að fara í gegnum þá æfingu. Hvernig lítur höfuðborgarsvæðið út með 500.000 manns? Hvernig líta Egilsstaðir út með 100.000 manns? Í samgöngumálum erum við sífellt að bæta við einhverjum vegum hingað og þangað og byggja þá upp, raforkukerfið og allt þar fram eftir götunum, og það er allt til þessara 15 ára sem er framsýnasta áætlunin sem við erum með í íslenskum stjórnmálum í rauninni. Hún er samt ákveðin smásjá á heildarkerfið, á heildarsamgöngukerfið. Við þurfum að hafa stóru myndina, teikna upp hvernig fullkomið samgöngukerfi væri, umhverfislega séð, hagkvæmnislega, út frá atvinnuþróun, þjónustu, fyrir heilbrigðiskerfið o.s.frv. Hvernig myndi það líta út? Þá getum við prentað það á vegginn á bak við okkur. Við erum að fara að stefna þangað. Til að komast þangað miðað við stöðuna sem er núna þá er best að byrja þarna og þarna. Smám saman teiknum við upp í þá mynd. Ég held að það sé bara þannig sem við getum í rauninni gert áætlanir fyrir fjárlög eins og við erum að tala um núna á faglegan hátt. Annars erum við alltaf að lenda í þessum bitlingum hingað og þangað, henda einhverjum milljörðum í verkefni á einum stað og verkefni á öðrum stað af því að það er alltaf verið að bjarga einhverju einhvers staðar í staðinn fyrir að byggja upp eftir heildarsýn. Við köstum krónunni og spörum aurinn.

Gott dæmi um þetta finnst mér t.d. vera vegurinn um Ísafjarðardjúp, fínn eins og hann er. En hann sinnir samt í rauninni bara litlum hluta Vestfjarða. Ef hann hefði verið lagður fyrst suður fyrir og vestur fyrir, eins og er verið að byggja hann upp núna, þá hefði hann náð til miklu fleiri staða og verið miklu betri fjárfesting. Ísafjarðardjúpsvegurinn er góð fjárfesting en hinn hefði verið miklu betri. Hann hefði tekið aðeins lengri tíma í uppbyggingu og hefði orðið aðeins dýrari en sú fjárfesting hefði fyrr farið að skila ábata. Hún hefði virkað fyrir alla, líka Ísafjörð og Bolungarvík. Þetta er dæmi um það hvernig við forgangsröðum stundum með því að kasta krónunni og spara aurinn. Það var ódýrara að leggja bara Ísafjarðardjúpsveginn. Hinir vegirnir þurftu að bíða og er búnir að bíða ansi lengi. Ég hvet okkur öll til að fara að gera þetta aðeins betur.

Það er eitt sem mér finnst áhugavert. Aftast í nefndarálitinu hjá mér er ég með lista yfir erindin sem voru send fjárlaganefnd Alþingis og einnig í fylgiskjali II eru svör ráðuneyta við fyrirspurnum fjárlaganefndar Alþingis. Við fengum ekki svör við öllum fyrirspurnum. Það var að berast svar áðan, fyrir þremur tímum síðan, sem er ekki á þessum lista en kannski verður seinna fylgiskjalið uppfært. Það svar var um það hvernig námslán hafa þróast og leiga á námsmannaíbúðum. Síðan 2019 hefur t.d. verið hækkun um 26.000 kr. að meðaltali á leiguverði námsmannaíbúða. Fólk á almennum leigumarkaði, og jafnvel líka fólk í félagslegu húsnæði, var fyrir áramót að fá tölvupósta með nýjum leigusamningum. Hver er sú hækkun? Ég ætla að fara síðar yfir húsnæðismálin, ég er með smá greiningu á því hvernig það hefur áhrif á fólk. Vitið þið hver hækkunin er? Úr 250.000 kr. í 325.000 kr., einn leigusamningur, 75.000 kall á einu ári, verði þér að góðu. Og hvað er verið að gera í húsnæðisstuðningi hjá þessari ríkisstjórn? Það er í nefnd, það er enn í nefnd, átti að klára í nefnd í byrjun október eða eitthvað svoleiðis. En skilaboðin sem við virðumst vera að fá er að það sé verið að bíða eftir einhverjum kjarasamningum, þá sé hægt að birta það hvernig þetta á að vera. Ég átta mig ekki á því, ég skil ekki þennan þrjóskuhátt stjórnvalda. Þegar fjárlagafrumvarpið er lagt fram þá er okkur sagt að í varasjóði sé einhver upphæð í húsnæðispakka, húsnæðispakka sem einhver nefnd er að vinna að og mun skila tillögum fyrir 2. umr. Það gerðist ekki, nú er verið að vona að hún skili fyrir 3. umr. Síðan þetta var þá kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum að þetta væru u.þ.b. 2 milljarðar, nánar tiltekið, kom fram í fjárlaganefnd, 1,7 milljarðar. 1,7 milljarðar af þessum peningum í varasjóðnum var áætlaður í húsnæðismál. Þá klóra ég mér í hausnum og spyr bara einfaldrar spurningar: Er þessi nefnd að vinna að tillögum um þennan húsnæðispakka með þessa upphæð til hliðsjónar — verður 1,7 milljörðum einhvern veginn úthlutað í vaxtabætur o.s.frv. — eða hefur hún frjálsar hendur? Ég veit það ekki. En fjárheimildarlega séð og samkvæmt reynslunni lítur út fyrir að nefndin sé með takmarkaðar fjárheimildir, fái bara 1,7 milljarða til þess að dreifa einhvern veginn. En svo virðist það ekki einu sinni vera nefndin sem fær að úthluta þessu heldur veltur það á einhverju sem er verið að glíma við í kjarasamningunum. Þegar það koma niðurstöður í kjarasamninga þá fær nefndin það í hendurnar til að skila í sinni útfærslu.

Ég átta mig ekki á svona vinnulagi. Erum við með ríkisstjórn hérna sem er að setja fram sína stefnu eða er hún bara að setja fram einhverja stefnu sem hún nær fram í samningaviðræðum við verkalýðshreyfinguna? Mér finnst það vera mjög skrýtin stefnumótun stjórnvalda að vinna þannig, alla vega fyrir þessi fjárlög, af því að stjórnvöld eiga að starfa með fyrirsjáanlegum og gagnsæjum hætti. Það er ekkert að því að stjórnvöld séu að semja við verkalýðshreyfinguna, alls ekkert, en á þessum tímapunkti þá er það eitthvað fyrir næstu fjármálaáætlun. Tímapunkturinn er bara þar núna. Við erum að fara að afgreiða fjárlög 2023. Að segja okkur að það séu 1,7 milljarðar í varasjóði til þess að koma til móts við verkalýðshreyfinguna, en við vitum ekki enn þá hvernig það skiptist á milli málaflokka, er bara ekki boðlegt. Það átti að vera komið fram í fjármálaáætlun síðan í vor, fyrir næsta ár. En við erum greinilega á síðasta snúningi með þetta allt og fjárlagafrumvarpið sem ekki var hægt að leggja fram fullbúið erum við að fá í hausinn hérna, 54 milljarðar á milli umræðna sem við vitum í rauninni ekkert hvort séu til að uppfylla lögbundin verkefni eða stefnu stjórnvalda á nokkurn hátt, hvort það sé verið að ná markmiðum, við höfum ekki hugmynd. En greiningar, ef maður reynir að fara ofan í þær tölur sem við höfum aðgang að, sýna manni t.d. að í heilbrigðismálum er ekki nein efling í verkefnum heilbrigðiskerfisins heldur er einungis verið að viðhalda núverandi ástandi.

Þetta er erfitt. Þetta er sjöunda fjárlagafrumvarpið sem ég er að glíma við hérna og þetta er það versta hingað til. Að fenginni reynslu hef ég aldrei séð eins slæmt fjárlagafrumvarp lagt fram fram að þessu. Og ég hef glímt við fjárlagafrumvörp sem voru lögð fram í desember. (Gripið fram í.) Við erum á einhverjum skrýtnum stað.

(Forseti (LínS): Forseti vill geta þess að klukkan hætti að ganga í púlti forseta, ef þingmaður notaði umframtíma. )