153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:07]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég kem hér til þess að taka skýrt fram í upphafi að þetta er alls ekki versta fjárlagafrumvarp sem ég hef séð og ég hef setið lengur í fjárlaganefnd en hv. þm. Björn Leví Gunnarsson. En ég þakka honum fyrir hans framsögu sem og nefndarálit hans sem er svona stílæfing eins og hans er háttur og gaman að lesa það. Undir lok sinnar ræðu þá greip hv. þingmaður mig eiginlega með þessari framtíðarsýn og ég vil bara segja að ég fylgi honum alveg í því að svona byggðastefnuleg sjónarmið, þ.e. byggðastefnu fyrir allt Ísland, ekki bara landsbyggð, væri áhugavert að ræða. Auðvitað er það hlutverk landsbyggðarþingmanns að draga vagninn og reyna að fá aðra til að skilja það að það er líka hægt að byggja upp úti á landi ef réttar aðstæður eru skapaðar. Það tengist einmitt þessum þáttum sem hv. þingmaður nefnir hér um orkumannvirki, um samgöngur og slíkt. Hafandi sagt þetta þá myndi ég eiginlega vilja hafa svona aukaspurningu í fyrra andsvari mínu og spyrja hv. þingmann um viðhorf hans til Kjalvegar án þess að það tengist með beinum hætti þessu fjárlagafrumvarpi. En það væri í sjálfu sér alveg í anda þess sem hann var að ræða og er áhugavert að við ræðum nánar og betur síðar.

Hv. þingmaður fór í sinni ræðu yfir ýmis sjónarmið um fjárhag heilbrigðiskerfisins og Landspítala og ég saknaði kannski úr hans nefndaráliti breytingartillögu þar um. Spurning mín er einfaldlega þessi: Hver er þá tillaga hv. þingmanns um hver fjárhæð verði til reksturs Landspítalans á næsta ári, svo ég dragi hann sérstaklega út úr? Og trúir hv. þingmaður því að með þeim aðferðum sem hann gerði svo langt mál um hér, greiningum og slíkum markmiðum, sé hægt að finna hina einu réttu tölu um hvað rekstur Landspítala ætti að kosta?