fjárlög 2023.
Frú forseti. Þessi breytingartillaga kemur frá fulltrúa okkar í annarri nefnd þingsins sem fjallar um netöryggi og greiningar um að þarna vanti aðeins meira til að uppfylla ákveðnar kröfur. Við fórum ekkert rosalega vel yfir það í fjárlaganefnd. En þetta er sem sagt annarrar nefndar tillaga, ef það má orða það þannig. Hv. þingmaður sér ekki stefnu okkar. Stefnan er mótuð í fjármálaáætlun. Það þarf að fletta upp í umræðum um fjármálaáætlun og þeim tillögum o.s.frv. til að sjá nánar stefnuna. Ég fjallaði hins vegar um stefnuna í þeirri framtíðarsýn sem ég var að tala um en hún birtist nánar í tengslum við fjármálaáætlun. Hér erum við bara í smáatriðunum í útfærslu í fjárlögum og við erum ekki með útfærða okkar sýn á fjármálaáætlun, hún var ekki samþykkt þannig að við erum ekki með útfærða útfærslu á því í fjárlögunum, það er alger óþarfi, við vísum bara á okkar sýn varðandi fjármálaáætlun. Hv. þingmaður talar um að það sé ekki hægt að finna einu réttu töluna. Ég er alveg sammála því. En við erum alltaf með kostnaðarmat og við erum alltaf með ábatagreiningu og við erum alltaf með mat stjórnvalda á því hvað þau þurfa til að sinna lögbundnu verkefnum, þ.e. við eigum að vera með það en við fáum það hins vegar ekki. Það er hin eina rétta tala sem við getum síðan rifist um fram og til baka hvort sé nógu há eða of lág eða hvað sem er. En ef við fáum ekki þessa tölu þá getum við ekki einu sinni tekið rökræðuna um hvort hún sé hin eina rétta, of mikil eða of lítil. Þá erum við alltaf bara í rifrildinu um heildarafkomu ríkisins sem er það yfirborðskenndasta sem við getum gert. Og þar erum við nákvæmlega núna, því miður.