fjárlög 2023.
Forseti. Mig langaði að spjalla aðeins við annan nýjan fjárlaganefndarmeðlim af því að mér hefur fundist svo hressilegt að fá inn nýtt fólk í fjárlaganefnd eftir síðasta kjörtímabil og deila reynslu fyrri ára, hvort maður sé orðinn of samdauna eða hvort þetta sé enn þá bara sama harkið og búið er að vera hérna undanfarin ár, að fá smá sýn nýs fólks í fjárlaganefnd.
Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni ákveðna forgangsröðun. Ég er alltaf að reyna að klóra mér í hausnum: Hvar er forgangsröðunin? Og núna kom það fram hjá dómsmálaráðuneytinu að þegar dómsmálaráðuneytið sendir tillögur til fjármálaráðuneytisins og ráðherranefndar um verkefni o.s.frv. sem þau vilja hafa í fjármálaáætlun og fjárlögum, þá sé það trúnaðarmál sem fjármálaráðherra ákveður að sé trúnaðarmál, af því að þegar það kemur nei til baka — þ.e. segjum að dómstólar segi: Við viljum fá 10 milljarða. En fjármálaráðuneytið og ríkisstjórnin segja: Nei, þið fáið bara 9, þá þarf að skera út milljarða einhvers staðar úr tillögum dómsmálaráðuneytisins og allra annarra ráðuneyta, það er sama fyrirkomulag alls staðar. En við fáum ekki að vita hvað er skorið niður af því að við fáum ekki að sjá upprunalegu tillöguna. Þar af leiðandi fáum við ekki að sjá forgangsröðunina, af því að auðvitað er það þannig að það er skorið neðst af forgangsröðunarlistanum. Það er ekki skorið af það sem er forgangsraðað hæst. Ég er að velta fyrir mér hvort hv. þingmaður sjái kannski gagnsæisgalla í þessu, klóri sér aðeins í hausnum yfir því eins og ég, vegna þess hvað við fáum í rauninni lítið af upplýsingum í fjárlagavinnunni.