fjárlög 2023.
Forseti. Það sem birtist okkur hins vegar sem er ólíkt því sem verið hefur á fyrri árum er mjög takmarkað fjárlagafrumvarp vegna þjóðhagsspárinnar og ýmislegs svoleiðis eins og hún var, en svo kemur einhvern veginn uppfærð þjóðhagsspá sem býr til miklu meira af mögulegum tekjum sem er hægt að eyða hingað og þangað. Og varðandi forgangsröðun þá klóra ég mér aðeins í hausnum og segi: Já, heyrðu, allt sem var bætt við út af því að það komu meiri tekjur sem var hægt að eyða hlýtur að vera það sem var neðst á forgangsröðunarlistanum, ekki satt? Fjárlagafrumvarpið sem við fengum í haust var með sínum upphæðum fram og til baka og við vissum að það vantaði í heilbrigðiskerfið og ýmislegt svoleiðis, það er sem sagt búið að taka það frá. Það var ekki nægilega mikill peningur til að setja þessa 12,2 milljarða í heilbrigðiskerfið í haust. Þegar nýtt fjármagn kom síðan inn nú í nóvember þá náðist fjármagnið til að bæta við á forgangsröðunarlistann. Næst á forgangsröðunarlistanum er þá t.d. heilbrigðiskerfið með 12,2 milljarða. Þetta var ekki það sem var efst á forgangsröðunarlistanum hjá ríkisstjórninni, annars hefði hún fjármagnað það í haust, ekki núna rétt fyrir jólin, ekki satt? Þannig virkar forgangsröðun. Alla vega, ég skil þetta ekki öðruvísi. Maður raðar því sem er mikilvægast fyrst, fjármagnar það. Því sem er síst mikilvægt, eða síður mikilvægt, raðar maður neðar og ef maður er ekki með nægilega mikinn pening geymir maður það þangað til seinna. Þessi munur á fjárlagafrumvörpum frá því í haust og núna sýnir okkur hvar forgangsröðunin liggur svona í heildina séð, þó að við sjáum ekki nákvæmlega verkefni innan stofnana þá sjáum við hana á málefnasviðunum hjá ríkisstjórninni.