fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir þetta andsvar. Ég taldi mig hafa fært rök fyrir því af hverju þetta væri frumvarp hinnar íslensku yfirstéttar. Fjármagnstekjur hafa aukist um 120% að raunvirði á tíu árum. Atvinnutekjur hafa aukist um 53%. Kaupmáttur meðaltekna fjármagnstekna hefur aukist um 85% frá árinu 2011 en 31% í tilfelli meðalatvinnutekna. Fjármagnstekjur jukust um 46% að raunvirði milli áranna 2020–2021, atvinnutekjur um 5%. Fjármagnstekjur jukust um 81% til efstu tekjutíundanna á árinu 2020, 81%. Það er gott að vera í þessari efstu tíund, þeir fá 81% af öllum fjármagnstekjum og þetta er ekki skattlagt nægjanlega, þeir eru ekki að borga sinn hluta til íslensks samfélags. Það er það sem ég sagði í lokaorðum mínum og lagði mikla áherslu á. Þetta skýrir það af hverju ráðstöfunartekjur 10% ríkustu landsmanna, topp tíu, jukust þrefalt á við hin 90% landsmanna. Þetta er aukin tekjuskipting. Þetta er aukin efnahagsskipting. Það er þetta sem ég er að gagnrýna. Ég tek það fram að auknar fjármagnstekjur geta verið góðar. Það er búið að hækka hlutabréf og annað slíkt. Það er ekkert að því. En það þarf að borga sinn hluta til samfélagsins. Það er ekkert að því að verð á sjávarafurðum sé hátt. Það er bara mjög gott. En það á að greiða í sameiginlegan sjóð landsmanna veiðigjald í hlutfalli við það. Og þessi stofnun hér þarf að taka á samkeppnisleysi á íslenskum bankamarkaði. Samkeppnin er engin. Það er sjálftaka í hagnaði. Það þarf að skattleggja hann. Það er sorglegt að vita til þess að við frumvarp til fjáraukalaga var tillaga frá formanni Flokks fólksins, Ingu Sæland, um 360 millj. kr. eingreiðslu til aldraðra — þetta eru 6.000 manns, að þeir fengju 60.000 kr. fyrir jólin í jólabónus — (Forseti hringir.) og það var sagt nei. 150 milljónir til matargjafa fyrir jólin. Nei. Það var sagt nei. Þetta er tekjuskiptingin.