153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:50]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, hún vakti mig til mikillar umhugsunar og ég vildi að ég hefði tíu mínútur til andsvara hér. Varðandi störf úti á landi og að þau leki til baka, þá vil ég horfa á aðeins stærri mynd. Ég tel að ástandið sé þannig að það séu ekki jöfn búsetuskilyrði í þessu landi. Vegasamgöngur á Vestfjörðum eru ekki eins góðar og á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Vissulega er verið að vinna í vegi um Dynjandisheiði og vegur til Bíldudals kemur seinna. Húshitun er dýrari úti á landi. Heilbrigðisþjónusta er ekki eins góð og svo er það verslun, Byggðastofnun hefur þurft að styrkja verslunina á Drangsnesi og á fleiri stöðum á landinu. Skólamálin ekki eins góð heldur. Svo er það jafn orkukostnaður. Ég ætla ekki að fara að tala um orkupakkann hér. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er þessi aðhaldskrafa. Ef aðhaldskrafan er t.d. 1% eða einhver prósentutala sem tekin er upp úr hatti fjármálaráðherra, eða einhvers staðar á skrifstofunni þar, þarf ekki að taka fram hvort aðhaldskrafan eigi að leiða til fækkunar starfa eða ekki? Það liggur aldrei fyrir. Þetta kemur að öðru atriði sem ég þarf að koma að í seinna andsvari.