153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:52]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, af hverju hreifst ég með? Það var af því að við vorum komnir í okkar ástkæra kjördæmi, eitt fallegasta kjördæmi landsins, Norðvesturkjördæmið. Það var ástæðan fyrir því að ég hreifst með og hugur minn fór beint til Vestfjarða, Vesturlands og Norðurlands vestra. Ég tel að ríkissjóður Íslands, ríkið, íslenskt samfélag, þurfi einfaldlega að fara í eins konar Marshall-aðstoð við hinar dreifðu byggðir landsins varðandi vegasamgöngur, húshitun, heilbrigðisþjónustu og orkumálin. Það verður að jafna lífskjör í landinu, það verður að jafna búsetuskilyrði. Ég er með þá hugmynd að við eigum að setja í stjórnarskrána ákvæði um landsbyggðina, um jöfn búsetuskilyrði í landinu, jöfn félagsleg réttindi í landinu. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um, ég hef reyndar mjög margar spurningar og ætla að reyna að nota þennan pínulitla tíma sem eftir er, eru þessar upplýsingar sem við fáum, t.d. um aðhaldskröfur varðandi málaflokka ráðherranna sem þeir þurfa að svara fyrir. Við fáum aldrei að sjá tillögur ráðherranna til fjármálaráðherra. Við fáum aldrei að vita þegar er 2 milljarða breytingartillaga í hvað peningurinn á að fara. Jú, hann á að fara í grunnrekstur. Mér líður stundum í fjárlaganefnd eins og ég sé í sögu Platóns um hellinn, þar sem við erum að horfa á skuggana á hellisveggnum. Við fáum raunverulega aldrei nægilegar upplýsingar í fjárlaganefnd. (Forseti hringir.) Það er atriði sem við eigum að sameinast um, einnig varðandi orðfæri í frumvarpi til fjárlaga; innan ramma utan ramma, aðhaldskrafa og annað slíkt. (Forseti hringir.) Við ættum að sameinast um það að fá betri upplýsingar í fjárlaganefnd.