153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:58]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessi svör. Það sem ég vil koma inn á í mínu seinna andsvari er að Sjúkrahúsið á Akureyri gerði fjárlaganefnd grein fyrir því að spítalinn þyrfti hálfan milljarð til viðbótar til þess eins að geta haldið sjó á næsta ári og sinnt lögbundinni þjónustu. Hvernig var brugðist við þessu? Ekki af meiri þunga en svo að það vantar enn þá 250 milljónir upp á. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að þetta geti kallað á þjónustuskerðingu og muni bitna á sjúklingum á næsta ári eða hallast meiri hlutinn að því að stjórnendur séu að ýkja vandann, að það þurfi raunverulega ekkert svona mikla fjármuni til að spítalinn geti haldið sjó og sinnt þeirri þjónustu sem krafist er af honum?