fjárlög 2023.
Frú forseti. Í öllu tali um efnahagsmál er mikið talað um væntingar og af því að hv. þingmaður nefndi stöðugleikann þá held ég að sá stöðugleiki sem ríkisstjórnin á — mér fannst dálítið fallegt að sjá að þegar ríkisstjórnin fagnaði fimm ára afmæli í síðustu viku eða hvað það var, þá virtist það vera þeirra bjartasti dómur að hún sprakk ekki, að hún er á lífi fimm árum eftir að hún fór af stað. En auðvitað eru þessir þættir sem hv. þingmaður spyr um atlaga að stöðugleikanum, að haga málum með þessum hætti. Síðan finnst mér það sjálfstætt vandamál að í þessum mikla halla, þegar útgjöldin eru með þeim hætti sem þau eru, er samt ekki verið að fjárfesta af krafti í grunnþjónustu og þeim þáttum sem ég nefndi í ræðu minni.