153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það rifjast upp fyrir mér líka umsögn loftslagsráðs um aðgerðir stjórnvalda. Mér hefur fundist hæstv. forsætisráðherra ekki síst mikið í því að tala um Ísland sem forystuþjóð á þessu sviði vegna þess að við höfum sett okkur góð markmið. Við erum enn þá alltaf bara að tala um markmiðin en ekki hvernig við ætlum að ná þeim fram. Þau eru ekki tímasett, þau eru ekki nægilega vel mælanleg og fjárfestingarnar í þeirra þágu liggja heldur ekki ljósar fyrir. Allt saman breytur sem eru ekki til þess fallnar að styðja við okkar markmið í þessum efnum. Varðandi Veðurstofuna — ef Landspítalinn getur verið grænn þá getur Veðurstofan verið það líka.