fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að það sé óhætt að segja að það sem við erum að ræða hér í dag er ekki komið til framkvæmda, í fyrsta lagi er það þannig. Það sem við erum að ræða núna er ekki komið til framkvæmda, það liggur alveg fyrir. (Gripið fram í.) Við erum ekki búin að ganga frá þessum fjárlögum. Í þessum fjárlögum eru ákveðin skref sem eru tekin fram á við og þess vegna kallaði ég þetta velferðarfjárlög. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður kom inn á að vandinn er víða en það sem búið er að gera núna og sem stendur í þessu nefndaráliti sem við erum að fjalla um hér í dag, sem ekki er orðið að lögum, við skulum alveg hafa það á hreinu, er ákveðin sókn í velferðarmálum. Ef menn sjá það ekki þá verður þetta ansi snúið, held ég. Við erum að bæta við fjármunum á milli umræðna upp á 17,4 milljarða, um 9,7 milljarðar sem snúa að félagsmálahlutanum, og tekið þar á mörgum þáttum. En vissulega eru þættir sem standa eftir og ég ætla ekki að gera neitt lítið úr því. En ég ætla bara að leyfa mér að segja að þessi fjárlög sem við erum að tala um hér eru að byrja á því að reyna að taka utan um þar sem þörfin er mest innan velferðarhlutans. Mér dettur ekki í hug að gagnrýna spurningu hv. þingmanns, það stendur vissulega eitthvað eftir. Það er algerlega kýrskýrt. En við skulum bara hafa í huga hvað stendur í nefndarálitinu og um hvað við erum að fjalla hérna.